Enski boltinn

Gerrard mætir á æfingar í næstu viku

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Steven Gerrard.
Steven Gerrard. Vísir/Getty
Steven Gerrard hefur staðfest að hann muni í næstu viku æfa með Liverpool, sínu gamla félagi, í fyrsta sinn eftir að hann fór frá liðinu í sumar.

Gerrard er nú á mála hjá LA Galaxy í MLS-deildinni sem er nú í fríi. Gerrard útilokar þó að hann muni spila með Liverpool í vetur sem lánsmaður.

„Ég fer í næstu viku og mun æfa með hr. Klopp í nokkrar vikur,“ sagði Gerrard. „Ég hlakka verulega til að sjá hvað hann hefur fram að færa og ég mun reyna að læra af honum.“

Sjá einnig: Eitt ár í viðbót hjá Gerrard

Gerrard var á mála hjá Liverpool í nærri sautján ár en hann á eitt ár eftir af samningi sínum við LA Galaxy. Líkur eru á að hann muni leggja skóna á hilluna að því loknu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×