Enski boltinn

Gerrard hrósar Balotelli

Anton Ingi Leifsson skrifar
Gerrard fagnar marki sínu.
Gerrard fagnar marki sínu. Vísir/Getty
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, var hæstánægður með 3-0 sigur liðsins á Tottenham í dag. Sigurinn var aldrei í hættu.

„Markmið okkar fyrir tímabilið var að spila betri varnarleik og ég er viss um að þjálfarinn sé hæstánægður með að halda hreinu. Tottenham er frábært lið, en við gerðum mjög vel í dag," sagði Gerrard og hrósaði Mario Balotelli í hástert.

„Allra augu voru á honum og mér fannst hann vera frábær í þann klukkutíma sem hann spilaði. Hann leggur mikið á sig og hann mun bara bæta sig undir stjórn Rodgers."

Gerrad skoraði úr vítaspyrnu í leiknum í dag, en hann segir að Balotelli muni fá tækifæri á vítapunktinum á þessu tímabiil.

„Hann er frábær vítaskyta og ég er viss um að hann muni fá tækifæri á þessu tímabili. Þeim mun fleiri góðar vítaskyttur sem við höfum, því meiri mögulega eigum við, sérstaklega í útsláttarkeppni," sagði Gerrard að lokum.


Tengdar fréttir

Sigur í fyrsta leik Balotelli

Liverpool heldur áfram góðu taki sínu á Tottenham, en þeir rauðklæddu unnu góðan 3-0 sigur á White Hart Lane í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×