Enski boltinn

Gerrard byrjaður að æfa með Liverpool | Myndir

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það fór vel á með þeim Gerrard og Klopp.
Það fór vel á með þeim Gerrard og Klopp. vísir/getty
Steven Gerrard skipti út sólinni í Kaliforníu fyrir rigninguna í Liverpool í gær.

Hann hefur fengið leyfi hjá Jürgen Klopp, stjóra Liverpool, til þess að æfa með félaginu þar til hann fer aftur til Bandaríkjanna þar sem hann spilar með LA Galaxy.

Klopp hefur þó sagt að ekki komi til greina að Gerrard spili með félaginu.

„Ég sagði við Steven að dyrnar stæðu alltaf opnar og hann mætti æfa með okkur þegar hann vildi. Það geta allir lært af honum en samningur hans er við félag í Bandaríkjunum," sagði Klopp.

vísir/getty
vísir/getty
vísir/getty
vísir/getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×