Sport

Gerpla tvöfaldur bikarmeistari

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Gerpla er bikarmeistari kvenna
Gerpla er bikarmeistari kvenna mynd/fsí
Gerpla vann tvöfalt í bikarkeppni Fimleikasambands Íslands í dag.

Bikarkeppnin er spiluð sem liðakeppni þar sem allt að 5 keppendur mynda lið og keppa á hverju áhaldi en aðeins 3 sterkustu telja til stiga.

Ármann var í forystu fyrir lokaumferðina í kvennaflokki þrátt fyrir að mæta aðeins með þriggja manna lið til leiks. Að lokum fór svo að Gerpla sigraði, Ármann varð í öðru og Björk tók bronsið, 0,250 stigum á eftir Ármanni. Sigur Gerplu var nokkuð öruggur en 1400 stigum munaði á efstu sætunum tveimur.

Gerpla varði bikartitilinn frá því í fyrra í karlaflokki með sigri á sameinuðu liði Ármanns og Bjarkar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×