Lífið

Gerir dyraöt og knúsar til styrktar Parkinsonsamtökunum

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Nikulás tekur við hinum ýmsu bónum í gegnum Facebook-síðu sína þar sem hann gengur undir nafninu Shady Nick.
Nikulás tekur við hinum ýmsu bónum í gegnum Facebook-síðu sína þar sem hann gengur undir nafninu Shady Nick. Fréttablaðið/Arnþór
Nikulás Ari Hannigan hyggst hlaupa maraþon í ágúst og safna áheitum til styrktar Parkinsonsamtökunum á Íslandi. Ekki nóg með það, heldur hefur hann tekið upp á því að bjóða hverjum sem það vill þiggja að hann leggi leið sína fram hjá húsum vina og kunningja og kasti á þá kveðju, geri dyraat eða gefi faðmlag.

„Ég hugsaði með mér að það væri sniðugt til þess að fá þol að gera dyraat,“ útskýrir Nikulás. „Ég er spenntur að sjá hvort ég fái nógu mikið af beiðnum. Þá get ég kannski skipulagt heilt hlaup í kringum þær. Það er það sem ég vonast til.“

Nikulás er nýbúinn að bjóða fram þessa þjónustu sína en enn sem komið er virðist helst hafa myndast spenna í kringum það að fá hann til að gera dyraat. „Já, eitt faðmlag til kærasta vinkonu minnar. En síðan bara dyraat.“ Faðmlögin verða líkast til í rakari kantinum. „Ætli ég verði ekki svolítið sveittur á hlaupunum,“ segir Nikulás og hlær.

Ástæðan fyrir því að Parkinsonsamtökin urðu fyrir valinu er Nikulási hjartfólgin. „Ég ákvað að fyrst að ég væri að hlaupa maraþon þá myndi ég hlaupa til styrktar einhverju. Amma mín er með parkinsonsjúkdóminn og hefur þjáðst af honum lengi,“ útskýrir hann.

„Hún er mjög mikilvæg manneskja í lífi mínu, er enn þá orkuríkasta manneskja sem ég þekki og lætur ekkert stöðva sig þrátt fyrir að vera svona veik.“

Ef einhver vill með óhefðbundnum hætti láta félaga vita að til hans sé hugsað er sá hinn sami hvattur til þess að fara inn á hlaupastyrkur.is og leita Nikulás uppi. Fyrir að minnsta kosti 1.000 króna áheit sinnir Nikulás beiðnunum sem skulu berast til hans í skilaboðum á Facebook-síðu hans „Shady Nick“. Enginn ætti að hika við að hafa samband.

„Endilega takið þátt í þessu, því fleiri því betra. Bæði að styrkja mig til að hlaupa og samtökin í leiðinni.“

Allur peningurinn sem safnast rennur til samtakanna. „Mér myndi ekki detta í hug að taka peninginn sjálfur.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×