Erlent

Gerðu tilraun til að ræna Cartier verslun

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Cartier skartgripaverslanirnar eru með þeim virtustu í heimi.
Cartier skartgripaverslanirnar eru með þeim virtustu í heimi. vísir/skjáskot
Tveir vopnaðir menn gerðu í kvöld tilraun til þess að ræna skartgripaverslun Cartier í París í Frakklandi. Mennirnir tóku þar konu gíslingu og flúðu vettvang.

Ræningjarnir tveir drógu upp byssur þegar lögregla veitti þeim eftirför og galt lögregla í sömu mynt. Mennirnir stöðvuðu að lokum bifreið sína og flúðu inn á hárgreiðslustofu þar sem þeir voru handsamaðir. Ekki liggur fyrir hvort nokkurn hafi sakað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×