Lífið

Gerðu þjóðhátíðarmyndband FM95Blö á fimm dögum

Gunnhildur Jónsdóttir skrifar
Andri, Jónas og Jakob reka flott framleiðslufyrirtæki þrátt fyrir ungan aldur.
Andri, Jónas og Jakob reka flott framleiðslufyrirtæki þrátt fyrir ungan aldur. mynd/aðsend
Þjóðhátíðarlag FM95Blö hefur líklegast ekki farið fram hjá neinum en strákarnir í IRIS Films sáu alfarið um upptökur og leikstjórn.

Þeir Andri Páll Alfreðsson, Jakob Gabríel Þórhallsson og Jónas Bragi Þórhallsson skipa framleiðsluteymið IRIS en þeir eru allir um tvítugt og nýútskrifaðir úr Verzlunarskólanum. Þetta er ekki fyrsta stóra verkefnið sem þeir taka að sér en þeir framleiddu einnig tónlistarmyndbandið við Eurovision-lag Maríu Ólafsdóttur.

Strákarnir, ásamt Audda, Steinda og StopWaitGo, tóku upp myndbandið og lagið auk þess að gefa það út á aðeins fimm sólarhringum.

Strákarnir þurftu að vera að fljótir að gera allt tilbúið fyrir frumsýningu myndbandsins.Mynd/IRIS Films
Aldrei upplifað aðra eins keyrslu

„Auddi hafði samband við okkur á föstudegi og sagðist vera með hugmynd og vildi fá okkur með sér. Við vorum auðvitað til í þetta um leið enda eru þeir miklir reynsluboltar. Við gátum ekki hist fyrr en á mánudeginum en þá settum við upp söguþráðinn og eftir það fórum við í reddingar og þeir fóru að taka upp lagið.

Við höfum aldrei gert neitt á jafn mikilli keyrslu. Við byrjuðum að taka upp seinnipartinn á miðvikudeginum fram á miðja nótt og þá sváfum við í einn til tvo klukkutíma. Við nýttum fimmtudaginn vel í upptökur og fórum svo til Eyja á föstudeginum að taka upp restina. Á meðan við fórum til Eyja varð einn okkar eftir í bænum og byrjaði að klippa. Við tökum okkur yfirleitt viku í að klippa svona verkefni þar sem við erum að nota mikið af brellum og laga litina en ekki tvo sólarhringa.

Til þess að bæta gráu ofan á svart þá var Gillz í útlöndum og kom ekki heim fyrr en á laugardagskvöldið en myndbandið var frumsýnt á sunnudeginum. Hann brunaði beint af flugvellinum upp í stúdíó hjá StopWaitGo til að taka upp sinn part og svo til okkar þar sem við vorum með „blue screen“ og við hentum partinum hans inn,“ segir Andri Páll.

Stund milli stríðaMynd/IRIS Films
Strákarnir í IRIS Films hafa tekið að sér fjöldann allan af verkefnum og voru mikið að vinna að sínum eigin hugmyndum í Verzló. Bræðurnir Jakob og Jónas halda út til London í kvikmyndaháskólann MET Film School í haust. Andri Páll stefnir á iðnaðarverkfræði í Háskóla Íslands. 

„Við ætlum að nýta tímann vel áður en þeir fara út og taka að okkur eitthvað meira af verkefnum. Okkur finnst þetta ótrúlega skemmtilegt, sérstaklega að vinna með Audda og Steinda. Það er öðruvísi að vinna með þeim þar sem þeir hafa verið svo mikið í þessu en það er stór ástæða fyrir því að þetta gekk svona vel að keyra verkefnið í gegn á nokkrum dögum.“


Tengdar fréttir

Bakkað á bílinn og missa af Herjólfi

Auðunn Blöndal og Steindi Jr. hafa lokið við að taka upp tónlistarmyndband við Þjóðhátíðarlagið sitt. Þeir félagar lentu í ýmsu við gerð myndbandsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×