Innlent

Gerðardómur yfirleitt skipaður með hraði

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Um 500 manns sóttu baráttufund BHM í Rúgbrauðsgerðinni þegar verkföll voru á sjöundu viku. Rúmum þrem vikum síðar voru verkföll BHM stöðvuð með lögum frá Alþingi.
Um 500 manns sóttu baráttufund BHM í Rúgbrauðsgerðinni þegar verkföll voru á sjöundu viku. Rúmum þrem vikum síðar voru verkföll BHM stöðvuð með lögum frá Alþingi. Fréttablaðið/Vilhelm
Engir fundir eða viðræður hafa átt sér stað milli samninganefnda BHM og ríkisins frá fundi sem ríkissáttasemjari boðaði til í kjaradeilunni á miðvikudaginn fyrir viku síðan.

Úr því ekki samdist fyrir mánaðamót ber Hæstarétti, samkvæmt lögum sem sett voru á verkfall aðildarfélaga BHM og hjúkrunarfræðinga, að skipa gerðardóm sem úrskurðar um kjörin.

Rétt fyrir mánaðamótin sagði Páll Halldórsson, formaður samninganefndar BHM ansi fátt benda til þess að tilboð kæmi frá ríkinu. „Það er alla vega ekkert að gerast og ekkert sem bendir til að það fari neitt að gerast,“ sagði hann hann.

Mál BHM á hendur ríkinu verður flutt í Héraðsdómi Reykjavíkur 6. júlí næstkomandi. Páll segir markmiðið með málshöfðuninni skýra. „Við viljum auðvitað bara sjá þessum ólögum hnekkt.“

Í samantekt um stöðuna í kjaradeilu BHM og ríkisins, á vef BHM, er bent á að inn í lögin hafi verið skrifaðar forsendur niðurstöðu væntanlegs gerðardóms.

„Og þess vandlega gætt að ekki sé hægt að miða við kjarasamninga sem nýlega hafa verið gerðir við aðrar sambærilegar háskólamenntaðar stéttir.“

Samkvæmt upplýsingum frá Hæstarétti er venjan sú að gengið sé mjög hratt til verka við skipan gerðardóms, enda þurfi dómurinn, samkvæmt lögunum sem sett voru 13. júní, að skila úrskurði sínum eigi síðar en 15. ágúst.

Gerðardómurinn

Í annarri grein laga um kjaramál stéttarfélaga BHM og hjúkrunarfræðinga (nr. 31/2015) segir að hafi ekki verið skrifað undir kjarasamning fyrir 1. júlí skuli Hæstiréttur tilnefna þrjá menn í gerðardóm sem skuli fyrir 15. ágúst ákveða kaup og kjör félagsmanna. „Hæstiréttur kveður á um hver hinna þriggja gerðardómsmanna skuli vera formaður dómsins og kallar sá dóminn saman,“ segir í lögunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×