Fótbolti

Gerard Piqué: Shakiru að þakka að ég er enn í Barcelona

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gerard Piqué og Shakira.
Gerard Piqué og Shakira. Vísir/Getty
Gerard Piqué, varnarmaður Barcelona og spænska landsliðsins, er hættur við að hætta í fótbolta þrítugur og ætlar nú að spila þangað til að hann er 35 ára. Hann þakkar konu sinni Shakiru fyrir breyttan og bættan lífstíl.

„Ég breytti mínum lífstíl þökk sé Shakiru og fjölskyldu minni. Ef að ég hefði haldið áfram á sömu braut og ég var á fyrir fimm árum þá væri ég ekki að spila með Barcelona-liðinu í dag," sagði Gerard Piqué í viðtali við El Pais.

„Núna mæti ég tímanlega á æfingar eða um klukkutíma áður en hún byrjar. Áður fyrr náði mætti ég á síðustu stundu. Núna borða ég líka vel og sef vel," sagði Gerard Piqué.

Gerard Piqué og Shakira kynntust árið 2010 þegar verið var að taka upp tónlistarmyndband fyrir HM-lagið 2010 „Waka Waka" sem Shakira flutti (Sjá myndbandið hér fyrir neðan). Þau eiga sama afmælisdag, 2. febúar, en Shakira er tíu árum eldri en hann.

Piqué talaði um það í þessu viðtali að Shakira vildi frekar sjá tvö börn þeirra fara út í tónlist frekar en fótbolta en að sonur þeirra Milan sé þegar smitaður af fótboltabakteríunni. Gerard Piqué og Shakira eiga tvö börn, þriggja ára strák (Milan) og eins árs stelpu (Sasha).

„Áður fyrr hélt ég að ég myndi enda ferilinn þrítugur en ég hef þegar ákveðið að ég ætli að halda áfram til 35 ára aldurs. Það verður samt erfitt að spila fyrir eitthvað annað lið en Barcelona," sagði Piqué.

Gerard Piqué talaði líka um þá staðreynd að hann njóti fótboltans miklu meira í dag.  „Þetta var einu sinni bara vinnan mín en nú verð ég hrifnari af fótbolta með hverjum deginum," sagði Gerard Piqué.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×