Viðskipti innlent

Gera ráð fyrir að 8,75 milljónir manna fari um Keflavíkurflugvöll á næsta ári

Atli Ísleifsson skrifar
Björn Óli Hauksson forstjóri Isavia.
Björn Óli Hauksson forstjóri Isavia. Mynd/Isavia
Isavia gerir ráð fyrir að 8,75 milljónir manna muni fara um Kelfavíkurflugvöll á næsta ári. Farþegaspáin var kynnt á fundi í morgun.

Í tilkynningu frá Isavia segir að spáin sýni að áframhald verði á vexti í farþegafjölda og nái vöxturinn bæði til farþega til og frá landinu sem og skiptifarþega sem einungis millilenda hér á leið sinni yfir Atlantshafið.

„Ánægjulegustu teiknin sem sjást í spánni eru þau að það átak sem ferðaþjónustan í heild hefur farið í við að fjölga ferðamönnum yfir vetrartímann hefur skilað miklum árangri,“ segir í tilkynningunni. Þá gerir spáin ráð fyrir að umferð farþega dreifist betur yfir sólarhringinn, en þannig fáist enn betri nýting mannvirkjanna á Keflavíkurflugvelli.

Íslendingar á faraldsfæti

Spáin gerir ráð fyrir 7,4 prósent aukningu íslenskra ferðamanna milli ára en þær tölur eru byggðar á upplýsingum sem fengnar hafa verið frá stærstu notendum Keflavíkurflugvallar.

„Gangi sú spá eftir mun heildarfjöldi íslenskra brottfararfarþega verða um 563 þúsund. Íslendingar hafa aldrei ferðast jafnmikið, en metið frá árinu 2007 verður slegið í ár og, ef spáin fyrir 2017 rætist verður það aftur slegið árið 2017. Þrátt fyrir þetta met verða Íslendingar einungis um 20% þeirra farþega sem ferðast um Keflavíkurflugvöll til og frá Íslandi,“ segir í frétt Isavia.

Á síðasta ári gerði farþegaspá Isavia ráð fyrir að 6.249.825 farþegar færu um völlinn á árinu 2016, en í morgun kom fram að„allt stefni í að árið 2016 muni enda í 6,8 milljónum farþega sem er 40,3% fjölgun frá fyrra ári.“

Sjá má upptöku af morgunverðarfundinum þar sem farþegaspáin var kynnt að neðan, en kynningin hefst þegar um fjórtán mínútur eru liðnar af upptökunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×