Gera má betur í baráttu við misrétti og fordóma

Fréttablaðið Innlent 23. febrúar 2012 07:00
Mannlíf Engar ákærur hafa verið gefnar út vegna kynþáttamisréttis frá árinu 2003 og félagasamtökum hafa ekki borist kvartanir heldur. Þessu er fagnað í skýrslu nefndar gegn kynþáttafordómum. fréttablaðið/anton
Mannlíf Engar ákærur hafa verið gefnar út vegna kynþáttamisréttis frá árinu 2003 og félagasamtökum hafa ekki borist kvartanir heldur. Þessu er fagnað í skýrslu nefndar gegn kynþáttafordómum. fréttablaðið/anton
Kynþáttafordómanefnd Evrópuráðsins gerir ýmsar athugasemdir við stöðu mála á Íslandi í nýrri skýrslu sinni, þó margt hafi lagast á undanförnum árum. Skýrsla nefndarinnar var gerð opinber á þriðjudag.

Íslensk stjórnvöld hafa ekki staðfest þá alþjóðasamninga sem þau voru hvött til að gera fyrir fimm árum, þegar kynþáttafordómanefnd Evrópuráðsins gerði síðast skýrslu um stöðu mála á Íslandi. Þá var eindregið lagt til við stjórnvöld að þau staðfestu ýmsa alþjóðasamninga.

Tólfti viðauki við mannréttindasáttmála Evrópu, sem kveður á um bann við mismunun að því er varðar réttindi sem tryggð eru í lögum, hefur verið undirritaður en ekki fullgiltur. Aðrir samningar sem um ræðir eru endurskoðaður félagsmálasáttmáli Evrópu, sáttmáli UNESCO gegn mismunun á sviði menntunar, rammasamningur um vernd þjóðernisminnihlutahópa og Evrópusáttmáli um svæðisbundin tungumál og tungumál minnihlutahópa.

Þá voru stjórnvöld hvött til að undirbúa staðfestingu alþjóðasamnings um vernd réttinda allra farandverkamanna og fjölskyldumeðlima þeirra og viðbótarbókun við sáttmála gegn tölvuglæpum.


Vilja breytta stjórnarskrá
Stjórnarskráin ætti að innihalda öflugri vörn gegn kynþáttafordómum og misrétti að mati nefndarinnar. Stjórnvöld telja að 65. grein hennar veiti nægilega vernd. Greinin kveður á um að allir skuli vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti.


Ríkisborgararéttur frá Alþingi getur skapað ójafnræði
Kynþáttafordómanefndin hefur áhyggjur af tveimur ákvæðum í nýjum lögum um íslenskan ríkisborgararétt. Í fyrsta lagi hefur nefndin áhyggjur af því að hægt sé að neita umsækjendum um ríkisborgararétt ef þeir hafa hlotið sekt eða fangelsisdóm, eða eru grunaðir um refsiverðan verknað. Þannig geta minniháttar brot sem sektir liggja við útilokað að einstaklingar geti fengið ríkisborgararétt. Nefndin telur þetta ákvæði óþarflega strangt og samrýmast ekki meginreglu um meðalhóf. Frumvarp um breytingar á þessum lögum er til umfjöllunar í allsherjarnefnd Alþingis nú og þar er miðað við hærri sektir en áður.

Þá verða umsækjendur að standast íslenskupróf eða fá undanþágu frá því. Þrátt fyrir að prófið sé talið tiltölulega auðvelt þá eiga einstaklingar, einkum frá Suðaustur-Asíu, sérstaklega erfitt með að fullnægja þessu skilyrði. Stjórnvöld eru því hvött til að tryggja að lestrarkennsla og íslenskunámskeið séu aðgengileg sem víðast.

Þá er í skýrslunni gerð athugasemd við að Alþingi geti veitt íslenskan ríkisborgararétt. Þessi aðferð hafi verið notuð þegar einstaklingar geta ekki náð tökum á íslensku þrátt fyrir viðleitni og einnig þar sem fólk hefur framið smávægileg brot. Nefndin segir að þótt þessi tilhögun teljist jafngilda þrautaúrræði eða lokaáfrýjun, þá mætti einnig líta svo á að hún skapi óvissu og ójafnræði.


Engar ákærur vegna kynþáttamisréttis
Stjórnvöld hér á landi voru hvött til þess fyrir fimm árum að grípa til aðgerða til að tryggja að ákvæðum hegningarlaganna um kynþáttafordóma og misrétti yrði beitt skilvirkt. Lagt var til að rannsakað yrði hvers vegna kvartanir væru jafn fáar og raun ber vitni.

Frá árinu 2003 hafa hvorki verið gefnar út ákærur fyrir brot á banni við kynþáttamisrétti né fyrir brot á grein um bann við kynþáttahatri. Frjáls félagasamtök hafa ekki heldur fengið kvartanir frá fórnarlömbum kynþáttafordóma undanfarin ár. Nefndin fagnar þessum jákvæðu merkjum en bendir engu að síður á að hér á landi er enginn sérhæfður aðili sem fórnarlömb geta snúið sér til. Slíkt embætti ætti að vera óháð lögreglu og ákæruvaldinu og fara með rannsókn ásakana um ósæmilega hegðun af hálfu lögreglunnar.
Þá hefur verið þrýst á að íslensk stjórnvöld innleiði ákvæði sem kveði á um sérstaka refsiþyngingu ef kynþáttafordómar liggja að baki broti, en það hefur ekki verið gert.


Fá tilvik ekki afsökun
Stjórnvöld hafa verið hvött til þess að tryggja að allir sem koma að refsiréttarkerfinu, lögmenn, lögregla, ákæruvaldið og dómarar, búi yfir góðri þekkingu á lagaákvæðum um kynþáttafordóma og misrétti og hvernig megi koma auga á fordóma sem afbrotahvata. Sú staðreynd að glæpir af þessu tagi eru mjög sjaldgæfir á Íslandi réttlætir ekki að þeim sé gefinn lítill gaumur við þjálfun þeirra sem að þeim koma, að mati nefndarinnar. Lagt var til að aukin áhersla yrði á að veita lögreglunni góða þjálfun á sviði mannréttinda og jafnréttis til að auka skilning á menningarlegri fjölbreytni. Þessi atriði eru nú hluti af grunnþjálfun í Lögregluskólanum.

Þá er hvatt til þess að stjórnvöld komi á fót miðstöð þar sem innflytjendur eigi aðgang að sérhæfðri aðstoð og þjónustu. Eftir að Alþjóðahúsi var lokað er eina slíka miðstöðin fjölmenningarsetur undir velferðarráðuneytinu, sem er staðsett á Ísafirði. Nefndin vill að miðstöð verði komið upp í höfuðborginni, því þar séu langflestir innflytjendur.

Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 24. maí. 2012 21:34

Verjandi líkti al-Thani málinu við mál Mladic

Ragnar H. Hall, verjandi Ólafs Ólafssonar, í al Thani málinu líkti stöðu sakborninga þess ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 21:30

Björk fékk Webby verðlaunin

Björk Guðmundsdóttur voru veitt Webby verðlaunin í vikunni í flokknum listamaður ársins. ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 21:28

Búinn að skila meðmælendalista

„Við erum búin að skila meðmælendalistunum," segir Hannes Bjarnason, forsetaframbjóð...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 20:30

Íslendingar duga ekki á Drekasvæðið - gefast upp

Útgerðarmaðurinn sem er á leið í olíuleit á Drekasvæðinu segir að ekki þýði lengur að hafa...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 20:00

"Menntaskólakerfið er undirlagt af kannabisneyslu"

Magnús Stefánsson, forvarnarfulltrúi, hefur miklar áhyggjur af aukinni neyslu ungmenna á k...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 19:56

Jóhanna og Füle ræddu gjaldeyrishöftin

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, fundaði í dag með Stefan Füle, framkvæmdastjóra ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 19:30

Catalina lenti á Reykjavíkurflugvelli

Catalina flugbáturinn, sem verður helsti sýningargripur flugdagsins í Reykjavík, lenti á R...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 18:49

Verjandi Barkar furðar sig á umfjöllun fjölmiðla

Verjandi Barkar Birgissonar, sem grunaður er um að hafa banað mann á Litla Hrauni 17. maí ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 18:45

Íhuga að hætta við komu skemmtiferðaskips vegna tollalaga

Franskt félag íhugar að hætta við fyrirhugaða siglingu skemmtiferðaskips við Íslandsstrend...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 18:30

Fjölskyldufyrirtæki tapaði gengismáli

Skuldastaða yfir þúsund fyrirtækja er í uppnámi eftir að Hæstiréttur sýknaði Lýsingu nú sí...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 17:58

Hæstiréttur sýknar Fylki

Hæstiréttur sýknaði í dag Íþróttafélagið Fylkir af kröfum Sveins Rafns Eiðssonar en hann s...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 16:58

Byssumaður reyndist vera leikari

Sem betur fer eru útköll lögreglu stundum byggð á misskilningi. Þannig var því t.d. farið ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 16:42

Lögmenn Annþórs ósáttir við framgang lögreglu

Lögmenn Annþórs Kristjáns Karlssonar, sem grunaður er um að hafa banað Sigurði Hólm Sigurð...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 16:17

Í aðgerð vegna fótbrots - konan hryggbrotnaði

Karlmaðurinn, sem féll niður um 40 metra þegar að brún á Lágey Dyrhólaeyjar gaf sig í dag,...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 15:36

Könnuðust ekki við að styðja Ástþór

Stikkprufur sem yfirkjörstjórn í Norðausturkjördæmi hefur framkvæmt hefur leitt í ljós að ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 14:59

Þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram um tillögur stjórnlagaráðs

Þingmenn samþykktu nú á þriðja tímanum tillögur um þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögu stjórn...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 14:56

Íbúar kjósa um sameiningu í haust

Íbúar Garðabæjar og Álftaness munu í haust greiða atkvæði um það hvort að sameina eigi sve...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 14:48

Næstum helmingur ók of hratt í Sigtúni

Brot 46 ökumanna voru mynduð í Sigtúni í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 14:47

Kannabis í Kópavogi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Kópavogi eftir hádegi í gæ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 14:16

Björgunarsveitarmaður: Kraftaverk hvað þau sluppu vel

"Þetta er ekkert annað en kraftaverk,“ segir Grétar Einarsson úr björgunarsveitinni ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 14:08

Tekur 500 klukkustundir að fara yfir málskjölin

Ætla má að það taki verjendur 500 klukkustundir að fara yfir málskjöl í al-Thani málinu ge...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 14:00

Druslugangan haldin í annað sinn

"Þetta gekk rosalega vel í fyrra og þátttakan var framar öllum vonum. Þess vegna er ekkert...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 12:42

Tillaga um að setja ESB í þjóðaratkvæði í haust felld á þingi

Tillaga Vigdísar Hauksdóttur þingkonu Framsóknarflokksins um hvort efna skuli til þjóðarat...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 12:25

Vill að Alþingi kaupi Landsímahúsið undir skrifstofur

Falla á frá byggingaráformum á skrifstofuhúsnæði Alþingis við Austurvöll en kaupa þess í s...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 11:58

Féllu af syllu í Dyrhólaey

Fjórir ferðamenn duttu niður af syllu í Dyrhólaey í dag þegar hún gaf sig og slösuðust þrí...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 11:21

Ekki þorandi að flytja Börk í dóminn - úrskurðað um varðhald í fangelsinu

Kveða átti upp gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Annþóri Kristjáni Karlssyni og Berki Birgisson í...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 11:09

Viðbrögð Grétu og Jónsa - myndband

Gréta Salóme og Jónsi stóðu sig með stakri prýði í forkeppni Eurovision á þriðjudaginn. Þa...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 11:00

Allt að þriggja ára fangelsi liggur við brotum starfsmannanna

Fyrrverandi lögreglumennirnir hjá sérstökum saksóknara gætu átt yfir höfði sér allt að þri...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 10:10

Björk í samstarfi við bókasafn í New York

Björk Guðmundsdóttir er komin í samstarf við bókasafn í New York og aðrar stofnanir. Verke...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 09:17

Hreindýr trufla ökumenn

Hreindýr hafa verið á ferli í kringum Hallormsstaðaskóg undanfarið en um er að ræða hóp ta...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 08:01

Verkfall í Noregi

Um 25 þúsund opinberir starfsmenn í Noregi hófu í morgun verkfallsaðgerðir eftir að samnin...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 07:30

Barn fann amfetamín í leikskólanum

Fimm ára drengur fann í febrúar poka með amfetamíni á leikskólanum Jörfa. Nóg til að valda...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 15:16

Catalina að koma en flugsýningu frestað

Catalina-flugbáturinn, sem verður helsti sýningargripur flugdagsins í Reykjavík, er nú á l...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 07:00

Þyrla sótti veikan sjómann

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, sótti veikan sjómann í gær af bát sem var að veiðum aus...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 07:00

Vill ekki gefa ungu fólki falsvonir

Mögulegt er að lækka þurfi ávöxtunarkröfu lífeyrissjóðanna úr 3,5% vegna efasemda um að sv...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 06:30

Vill að borgin stöðvi háhýsi úr fortíðinni

Íbúi í Vesturbænum vill að borgin hindri að sjö hæða hús rísi við höfnina. Byggingin var s...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 06:00

Sterkt efni getur hæglega verið banvænt

Hálft til eitt gramm af amfetamíni getur verið stórhættulegt börnum, til dæmis ef þau mynd...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 06:00

Veiðimenn vilja gott sambýli

Borgarstjórn hefur samþykkt breytingu á deiliskipulagi sem gerir líkamsræktarfyrirtækinu B...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 05:30

Samstarf um norðurslóðamál

Háskólinn á Akureyri og Háskóli Pierre et Marie Curie skrifuðu undir viljayfirlýsingu um s...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 05:30

Gamla lánið er enn hagstæðast

Stjórn Faxaflóahafna hafnar öllum átta tilboðunum sem bárust í endurfjármögnun á langtímal...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 05:30

Borgin byggir upp skólalóðir

Sett verða upp ný boltagerði við tvo grunnskóla í Reykjavík í sumar; Breiðagerðisskóla og ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 05:30

Frakkar stórir í þorskkaupum

Fiskkaupendur í Frakklandi keyptu á fyrsta ársfjórðungi þessa árs 45% meira af ferskum þor...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 05:00

Eiga 25.000 skópör á lagernum

Ný íþróttavöruverslun undir merkjum Sports Direct opnar við Smáratorg í Kópavogi á laugard...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 05:00

ESA skýrir samkeppnisreglur sínar

ESA, eftirlitsstofnun EFTA, hefur tekið upp nýjar reglur sem skýra eiga hvenær samkeppnisa...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 05:00

Annþór og Börkur harðneita allri sök

Tveir kunnir ofbeldismenn og refsifangar á Litla-Hrauni neita því alfarið að bera ábyrgð á...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 04:30

Alls eru 94 stjórnarfrumvörp óafgreidd

Samkvæmt starfsáætlun verður þingi frestað 31. maí og því aðeins fjórir þingdagar eftir. F...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 04:30

Aðalstigi fæst ekki færður

Byggingarfulltrúinn í Reykjavík hefur hafnað veitingu leyfis fyrir ýmsum breytingum innand...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / Gera má betur í baráttu við misrétti og fordóma