Sport

Gera grín að NFL-stjörnunum | Myndband

Kúrekarnir Romo og Bryant koma við sögu í myndbandinu.
Kúrekarnir Romo og Bryant koma við sögu í myndbandinu. vísir/getty
Í lok hvers tímabils í NFL-deildinni er búið til fyndið myndband þar sem leikmönnum og þjálfurum eru lögð orð í munn.

Mikil vinna er lögð í að tala yfir klippurnar og reynt að slá á létta strengi með því að snúa út úr því sem verið er að segja.

Þetta myndband nýtur alltaf mikillar hylli hjá fjölmörgum og má horfa á myndbandið hér að neðan.

Vísir minnir svo á að Super Bowl-leikurinn verður í beinni á Stöð 2 Sport á sunnudag. Útsending hefst klukkan 23.00.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×