Leikjavísir

Gera bíómynd byggða á Tetris leiknum

Samúel Karl Ólason skrifar
Mynd/Tetris.com
Fyrirtækið Tetris mun ásamt Threshold Entertainment gera kvikmynd byggða á tölvuleiknum Tetris. Um er að ræða „epískan vísindaskáldskap“ samkvæmt Larry Kasanoff hjá Threshold. Hann mun framleiða myndina, en fyrirtækið framleiddi einnig kvikmyndir sem byggðar voru á Mortal Kombat leikjunum.

Í ár er 30 ára afmæli Tetris leiksins.

„Það sem byrjaði sem einfaldur tölvuleikur fyrir 30 árum er í dag stór hluti af heiminum og tengir saman fólk á öllum aldri. Leikurinn fæðir þá þörf okkar að skapa röð og reglu úr óreiðu,“ segir Henk Rogers, framkvæmdastjóri Tetris, í tilkynningu.

„Við hlökkum til samstarfsins við Treshold Entertainment við að endurskapa þá upplifun og að færa stórkostlegan og nýjan Tetris heim á stjóra tjaldið. Í þessum nýja heimi verður fólki ljóst að það er meira að baki Tetris en að þurrka út heilar línur.“

Hér má sjá grínstiklu fyrir ímyndaða Tetris mynd.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×