Lífið

George Lopez spændi í konu sem var ekki ánægð með brandara

Samúel Karl Ólason skrifar
Grínistinn George Lopez.
Grínistinn George Lopez. Vísir/Getty
Grínistinn George Lopez brást reiður við á uppistandi sínu á dögunum þegar einn gestanna sýndi honum fingurinn. Lopez hafði þá nýlokið við brandara þar sem hann sagði eina af reglum latneska samfélagsins vera að það væri bannað að giftast svörtu fólki. Atvikið náðist á myndband.

Lopez hreytti óyrðum í konuna og kallaði hana meðal annars tík.

„Sestu á helvítis rassgatið. Ég er að tala tík. Þú borgaðir fyrir sýningu, sestu á rassgatið. Ef þú getur ekki tekið brandara ertu á röngum fjandans stað. Sestu á rassgatið eða drullastu út.“

Á endanum virðist hann hafa látið færa konuna út úr salnum.

Flestir áhorfendur virðast styðja Lopez með því að fagna honum og þegar verið var að fylgja konunni út kallaði hann: „fjögur sæti voru að losna fremst“.

Lopez hefur einnig tjáð sig um málið á Twitter eins og sjá má hér að neðan.

„Þú hefur tvo valkosti, skemmta þér að drulla þér út.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×