Erlent

Georg Bretaprins er orðinn eins árs

Atli Ísleifsson skrifar
Fiðrildi vekja gjarnan mikla lukku.
Fiðrildi vekja gjarnan mikla lukku. Vísir/AP
Bretar fagna í dag eins árs afmæli Georgs Bretaprins og munu foreldrar hans halda litla afmælisveislu fyrir nánustu fjölskyldu á heimili þeirra í Kensington-höll í dag.

Breska konungsfjölskyldan sendi frá sér myndir af prinsinum í gær í tilefni af afmæli Georgs sem er þriðji í erfðaröð bresku krúnunnar.

Á einni myndinni má sjá Georg sem dáleiddan af fiðrildi og á annarri foreldrana Vilhjálm og Katrínu með syni sínum þar sem þau horfa á einhvern óskilgreindan hlut.

Vilhjálmur og Katrín þökkuðu í tilkynningu fyrir allar þær hamingjuóskir sem höfðu borist.

Vísir/AP
Vísir/AP
Svona leit prinsinn út þriggja mánaða.Vísir/AP
Vilhjálmur og Katrín frumsýndu soninn þann 23. júlí í fyrra.Vísir/AP



Fleiri fréttir

Sjá meira


×