Innlent

Gengu um hvort með sína öxina á Háaleitisbraut

Ingvar Þór Björnsson skrifar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti fjölbreyttum verkefnum í dag.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti fjölbreyttum verkefnum í dag. Vísir/Eyþór
Tilkynnt var um tvo aðila á sjötta tímanum í dag sem gengu um með sitt hvora öxina á Háaleitisbraut. Lögreglan skarst í leikinn og afvopnaði aðilana. Þeir voru í kjölfarið færðir að lögreglustöð og yfirheyrðir.

Þá var tilkynnt til lögreglu um aðila sem var að brjótast inn í bifreið við Reykjavíkurveg. Lögreglan þurfti að beita úðavopni til að yfirbuga viðkomandi en hann var í mjög annarlegu ástandi að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Var hann handtekinn og færður í fangaklefa.

Um sjö leytið í dag tilkynnti verslun um þjófnað í Kringlunni. Aðilinn var handtekinn og vistaður í fangageymslu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×