Lífið

Gengilbeina lúbarði perra

Stefán Árni Pálsson skrifar
Myndbandið hefur vakið mikla athygli síðustu daga.
Myndbandið hefur vakið mikla athygli síðustu daga. vísir
Rússnesk kona hefur vakið mikla athygli á veraldarvefnum síðustu daga en hún brást hin versta við þegar karlmaður áreitti hana kynferðislega á veitingarstað.

Konan starfar á veitingarstað og lenti hún í því að karlmaður reyndi að gefa henni þjórfé með því að renna því inn undir skyrtuna hennar.

Konan hrindir manninum frá sér og lemur hann síðan í höfuðið með matseðlinum. Því næst klípur maðurinn í rassinn á konunni.

Allt náðist þetta á öryggismyndavél og má sjá myndbanda af atvikinu hér að neðan. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×