Glamour

Gengi Gucci enn og aftur fram úr vonum

Ritstjórn skrifar
Gucci er líklega eitt vinsælasta merki heims í dag.
Gucci er líklega eitt vinsælasta merki heims í dag. Mynd/Getty
Það er greinilegt að fólk sé að elska nýju stefnu Gucci undir stjórn Alessandro Michele. Það eru ekki einu sinni komin tvö ár frá því að Alessandro tók við sem yfirhönnuður. Ný sýn hans á merkið og ferskur andablær hefur hlotið lof gagnrýnanda allra helstu tískutímarita heims. 

Nú hefur það loksins skilað sér inn í sölutölurnar. Á þriðja ársfjórðungi þessa árs óx salan um 18.4 prósent. Það verður að teljast ansi merkilegt og þá sérstaklega í tískuheiminum. Á öðrum ársfjórðungi 2016 hækkaði salan aðeins um 3.1 prósent. 

Þetta eru með betri tölum sem hægt er að sjá hjá tískufyrirtækjum og því greinilegt að Gucci sé eitt vinsælasta tískuhúsið í heiminum í dag. 






×