Bílar

General Motors hagnast loks í Evrópu

Finnur Thorlacius skrifar
Höfuðstöðvar GM í Detroit.
Höfuðstöðvar GM í Detroit.
Í fyrsta sinn í fimm ár nær General Motors að hagnast á rekstri sínum í Evrópu. Bæði Vauxhall í Bretlandi og Opel í Þýskalandi er í eigu General Motors og fyrirtækið hefur einnig selt Chevrolet bíla í Evrópu, en ætlar að hætta því að mestu frá og með næsta ári.

Á rekstri þessara merkja hefur verið viðvarandi tap, en það breyttist á fyrri helmingi þessa árs. Hagnaður GM nam tæplega 17 milljörðum króna, en tapið nam 5,5 milljörðum króna í fyrra. Aukin sala bíla í Evrópu, kostnaðarlækkun og nokkrar árangursríkar kynningar á nýjum bílum fyrirtækisins urðu til þess að taprekstri var nú snúið í hagnað.

GM hefur þrátt fyrir þennan viðsnúning varað við áhrifum Brexit á rekstur Vauxhall á seinni helmingi ársins. Rekstur General Motors gekk einkar vel í heimalandinu Bandaríkjunum og á öðrum ársfjórðungi ársins ríflega tvöfaldaðist rekstrarhagnaður þess þar og var 353 milljarðar króna, eða tuttugu sinnum meiri en á öllum fyrri helmingi ársins í Evrópu. Sala GM jókst í Bandaríkjunum um 11 prósent á þessum öðrum ársfjórðungi ársins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×