Innlent

Gemsinn varð banabiti

Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar
Goddur með hinstu útgáfu símaskrárinnar.
Goddur með hinstu útgáfu símaskrárinnar. v
„Þetta er símaskráin sem fólk mun vilja eiga,“ segir Stefán Pálsson sagnfræðingur um hinstu útgáfu símaskrárinnar sem fólk getur sótt sér í dag.

Stefán hefur skráð sögu símaskrárinnar sem hefur komið út í 111 ár og gerir henni skil í útgáfunni með skemmtilegum hætti. „Símaskráin virkar sem ofurhversdagslegur hlutur, en hefur verið til á hverju einasta heimili svo árum skiptir og getur sagt ákveðna sögu.“

Stefán skoðar símaskrána meðal annars sem auglýsingamiðil um öryggismál. Hann dragi fram það skemmtilega og skringilega.

„Til dæmis þegar það var á ákveðnum tímapunkti fellt út úr ráðum um fyrstu hjálp hvenær væri ráðlegt að gefa manni fyrstu sígarettuna eftir slys,“ segir Stefán sem leit einnig til útlanda.

„Símaskrár lifa enn góðu lífi í Bandaríkjunum og sá bransi veltir jafn miklu og Hollywood. Við fáum samt engar fréttir af því hvaða símaskrár eru að velta mest.“

Er þetta raunverulega hinsta útgáfa símaskrárinnar?

„Gemsinn drap símaskrána. Við notum ekki jarðlínusímann eins og áður. Ef símaskráin verður gefin aftur út, þá held ég að það verði á öðrum forsendum,“ segir Stefán.

Stefán Pálsson sagnfræðingur sökkti sér í sögu símaskránnar og komst að ýmsu forvitnilegu sem hann gerir skil í hinstu útgáfu hennar.vísir/gva
Guðmundur Oddur Magnússon, betur þekktur sem Goddur, prófessor við Hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands, hannaði útlit símaskrárinnar.

„Ég samþykkti það með þeim skilyrðum að ég vildi fá að ráða þessu alfarið,“ segir Goddur. „Símaskráin hefur alltaf verið ljót. Ég hef aldrei fílað hana.“

Goddur kveðst þó hafa tekið eftir því þegar hann var yngri og kom á íslensk menningarheimili að fólki þótti vænt um símaskrána og reyndi að gera hana fallega. „Oft bjó fólk til nýja kápu utan um símaskrána. Ástæðan var sú að símaskráin var fólki kær.“

Goddur hafði þessa væntumþykju í huga í hönnunarferlinu.

„Í hönnunarvinnunni nýtti ég Sjónabókina, handrit með munstrum sem notuð voru í útsaumi og vefnaði áður fyrr. Því þessi bók varð að vera falleg,“ segir hann og kveður of snemmt að afskrifa símaskrána.

„Hvað eigum við að gera í rafmagnsleysi? Ég trúi ekki að þetta verði hinsta útgáfan,“ segir Goddur.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 6. maí




Fleiri fréttir

Sjá meira


×