Lífið

Gekk pallinn í síðasta skipti

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Brasilíska súpermódelið gisele Bundchen.
Brasilíska súpermódelið gisele Bundchen. Myd/Getty
Brasilíska súpermódelið Gisele Bundchen gekk pallinn í síðasta skipti á tískuvikunni í Sao Paulo á miðvikudaginn.

Bundchen er þrjátíu og fjögurra ára gömul og hefur verið viðloðandi tískubransann frá fjórtán ára aldri og sagði að helsta ástæða þess að hún yfirgæfi pallinn væri sú að hún vildi eyða meiri tíma með fjölskyldu sinni.

Fyrirsætan á tvö börn með eiginmanni sínum, Tom Brady. Fyrsta tískusýningin sem Bundchen tók þátt í var árið 1996 á tískuvikunni í New York.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×