Lífið

Gekk óvart inn á nakta karlmenn í sturtu í Laugum

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Bergljót segist ætla að passa sig betur í framtíðinni.
Bergljót segist ætla að passa sig betur í framtíðinni. Samsett mynd
Bergljót Arnalds leikkona varð fyrir því óheppilega atviki á mánudag að fara óvart inn í karlaklefann í Laugum. Sagði hún frá atvikinu á Facebook og kom þar afsökunarbeiðni á framfæri til nöktu karlmannanna sem voru í sturtuklefanum þegar hún gekk þar inn á sundfötunum

„Það var ekki ætlun mín að ganga beint inn í sturtuklefann og vona að ég hafi ekki sært blygðunarkennd neins með þessari óvæntu uppákomu. Þetta augnablik frá því ég áttaði mig á því hvar ég var stödd þar til ég setti hönd fyrir augu var svo vandræðalegt að ég ákvað að sleppa því að stynja upp afsökunarorðum til allra þeirra sem stóðu þarna allsnaktir. Það hefði bara lengt augnablikið sem þegar var orðið óþægilega langt.“

Í færslu sinni lofaði Bergljót að passa sig betur næst en þessi uppákoma hennar hefur vakið mikla kátínu vina hennar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×