Innlent

Gekk í skrokk á barnsmóður sinni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Maðurinn neitaði alfarið sök en að mati dómsins var framburður konunnar einkar trúverðugur.
Maðurinn neitaði alfarið sök en að mati dómsins var framburður konunnar einkar trúverðugur. vísir/getty
Karlmaður fékk á föstudaginn þriggja mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að hafa slegið sambýliskonu sína og barnsmóður með krepptum hnefa í andlitið, tekið hana hálstaki og hert að öndunarvegi með þeim afleiðingum að hún hlaut meðal annars heilahristing og húðblæðingar á andliti. 

Aðdragandi árásarinnar var sá að konan var í þann mund að slíta samvistum við mann sinn og svaf í herbergi með börnum sínum. Hún var að svæfa yngsta barn þeirra sem var enn vakandi þegar maðurinn stormaði inn í herbergið og hrifsaði af henni símann. Ástæða var sú að konan var byrjuð að ræða við annan mann og hafði barnsfaðir hennar komist að því fyrr um kvöldið.

Frásögn konunnar, sem dómurinn taldi enga ástæðu til að draga í efa, var á þann veg að maðurinn hefði rifið af henni símann og sagst ætla að drepa strákinn sem hún væri að tala við. Hann hafi í kjölfarið kýlt hana í andltiið átta eða níu sinnum, síðan tekið hana kyrkingartaki og hert þannig að hálsi hennar að hún hafi átt erfitt með að ná andanum.

Maðurinn neitaði sakargiftum og sagðist aðeins hafa ýtt við henni í tvígang þegar hún reyndi að ná símanum af honum. Hann hefði tekið símann til að kanna hvort grunur hans um að konan væri að halda framhjá honum væri réttur. Í þeim tilvikum hafi hún reynt að klóra hann.

Í dómnum kemur fram að framburður konunnar fyrir dómi hafi verið einkar trúverðugur og í samræmi við það sem fram kom í skýrslu hennar hjá lögreglu. Þá staðfesti vottorð sérfræðilæknis frásögn hennar. Var maðurinn dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir brot sitt og var sérstaklega tekið til alvarleika þess að brotin áttu sér stað þegar yngsta barn þeirra var vakandi.

Dóminn í heild má lesa hér.


 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×