Gekk í skrokk á barnsmóður sinni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 23. maí 2016 14:59 Maðurinn neitaði alfarið sök en að mati dómsins var framburður konunnar einkar trúverðugur. vísir/getty
Karlmaður fékk á föstudaginn þriggja mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að hafa slegið sambýliskonu sína og barnsmóður með krepptum hnefa í andlitið, tekið hana hálstaki og hert að öndunarvegi með þeim afleiðingum að hún hlaut meðal annars heilahristing og húðblæðingar á andliti. Aðdragandi árásarinnar var sá að konan var í þann mund að slíta samvistum við mann sinn og svaf í herbergi með börnum sínum. Hún var að svæfa yngsta barn þeirra sem var enn vakandi þegar maðurinn stormaði inn í herbergið og hrifsaði af henni símann. Ástæða var sú að konan var byrjuð að ræða við annan mann og hafði barnsfaðir hennar komist að því fyrr um kvöldið. Frásögn konunnar, sem dómurinn taldi enga ástæðu til að draga í efa, var á þann veg að maðurinn hefði rifið af henni símann og sagst ætla að drepa strákinn sem hún væri að tala við. Hann hafi í kjölfarið kýlt hana í andltiið átta eða níu sinnum, síðan tekið hana kyrkingartaki og hert þannig að hálsi hennar að hún hafi átt erfitt með að ná andanum. Maðurinn neitaði sakargiftum og sagðist aðeins hafa ýtt við henni í tvígang þegar hún reyndi að ná símanum af honum. Hann hefði tekið símann til að kanna hvort grunur hans um að konan væri að halda framhjá honum væri réttur. Í þeim tilvikum hafi hún reynt að klóra hann. Í dómnum kemur fram að framburður konunnar fyrir dómi hafi verið einkar trúverðugur og í samræmi við það sem fram kom í skýrslu hennar hjá lögreglu. Þá staðfesti vottorð sérfræðilæknis frásögn hennar. Var maðurinn dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir brot sitt og var sérstaklega tekið til alvarleika þess að brotin áttu sér stað þegar yngsta barn þeirra var vakandi.Dóminn í heild má lesa hér.
Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Innlent Dómi Harvey Weinstein snúið við Erlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Erlent Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Innlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Fleiri fréttir Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Komu litlum fiskibáti til bjargar Þyrlan í loftið vegna slasaðs vélsleðamanns Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Sjá meira