Innlent

Gekk fram á mörg lík á leið sinni upp Everest

Samúel Karl Ólason og Stefán Árni Pálsson skrifar
Mynd/Aðsend
„Þetta eru með afskektustu stöðum jarðarinnar og ég hef verið svo heppinn að hafa tækifæri til að fara þangað,“ segir Leifur Örn Svavarsson sem er nýkominn til Íslands eftir ferð á Norðurpólinn. Með ferðinni hefur Leifur nú farið á hina svokölluðu þrjá póla. Norður- og Suðurpólinn og á topp Everest.

„Ég fór á Norðurpólinn fyrir hálfum mánuði sem fararstjóri og gekk þar inn seinustu gráðuna, eða frá 89 gráðu til 90, sem eru 111 kílómetrar.“

Jólin 2012 fór Leifur svo á Suðurpólinn, þá einnig sem fararstjóri. „Þá gekk ég líka seinustu gráðuna og tók svo tvo aðra leiðangra á Suðurskautslandinu að klifra tvo óklifna tinda, fyrir nýsjálenska ferðaskrifstofu.“

Leifur fór á tind Everest í fyrra. „Ég fór norðan megin upp fjallið en sú leið er tæknilega erfiðari,“ segir Leifur.

„Efri grunnbúðir eru í 6400 metra hæð. Venjulegur maður gæti lifað í þeirri hæð í þrjá mánuði og því aðstæðurnar mjög erfiðar.“

Leifur segir samt sem áður að mun færri fjallgöngumenn séu norðan megin við fjallið. „Maður losnar til að mynda við að fara um þennan skriðjökul þar sem slysið hræðilega átti sér stað á dögunum.“

Leifur segir að hann hafi ekki komist á tind Everest nema með aðstoð styrktaraðila. 

„Ég var með gott bakland og fékk aðstoð frá Vodafone og 66 gráður norður.“

Hann segir að á leið sinni upp fjallið hafi hann gengið fram á mörg lík sem hafi verið í misjöfnu ásigkomulagi.

„Þegar ég kom yfir 8000 metra markið sá ég látinn sjerpa, mann sem ég kannaðist við. Honum hafði liðið illa fyrr um morguninn en hafði aftur á móti ekkert annað val en að fara upp.“

Leifur segir að sjerparnir séu almennt mjög duglegir og gríðarlega ósérhlífnir.

„Þetta eru virkilega almennilegir menn. Þeir geta lifað og unnið í marga daga við þessar aðstæður. Sjerpar eru mun hæfari til þess að vera á fjallinu en aðrir og njóta þeir mikillar virðingar í Nepal. Sérstaklega þeir sjerpar sem starfa efst í fjallinu, en þeir fá nokkuð vel borgað á þeirra mælikvarða.“

Leifur segir að sjerparnir hafi margir hverjir farið yfir tuttugu sinnum upp á tind Everest. Leifur ætlar að klára tindanna sjö á næsta ári.

„Ég ætla mér að klífa Kilimanjaro í janúar á næsta ári og býð ég öllum sem hafa áhuga á að koma með mér upp fjallið. Ég skal bera upp kampavínið,“ segir Leifur léttur.

mynd/aðsend
Leifur er mikill útivistamaður og er einn stofnenda Íslenskra fjallaleiðgöngumanna eða Icelandic Mountain Guides, og þegar Vísir náði tali af honum í dag var hann einmitt í fjallgöngu á Tröllaskaga.

„Þetta er tuttugasta starfsár okkar og það er ágætlega lýsandi fyrir mig að þú sért að taka viðtal við mig þegar ég er að staulast upp brekku á Tröllaskaga,“ segir Leifur.

Því hefur verið haldið fram að Leifur sé númer 38 í röð þeirra sem farið hafa á báða pólana auk Everest.

„Ég þori nú ekki alveg að standa við það. Ég hef ekki tekið þá tölfræði saman sjálfur, en það eru allavega ekki margir sem hafa gert það. Ég held þó að Haraldur Örn sé með þeim fyrstu sem fóru á tindana sjö og á báða pólana.“

„Fjallaleiðsögumenn ætla að bjóða upp á báða pólana í sínum ferðum á næsta ári. Í rauninni ef maður hugsar út í það, þá er mjög gott að æfa þá gönguskíðatækni sem notuð er á leið á pólana á Íslandi. Þá Sprengisandi eða Vatnajökli. Hér þarf líka að glíma við misjafnt veður. Með þeim rökum ætlum við að bjóða upp á þessar ferðir.“

Leifur segir það mikið verkefni að fara á Norðurpólinn.

„Fyrst fór ég til Svalbarða og þaðan með rússneskri flugvél sem er flogið inn á íshelluna þar sem henni er lent á sléttum ís, sem er ekki nema um eins og hálfs metra þykkur. Þó er byrjað á því að henda traktor út í fallhlíf sem ryður flugbraut og svo er flugvélinni lent á hjólum,“ segir Leifur.

„Í rauninni er þetta með fallegri ferðalögum sem ég hef farið. Fyrst hugsaði ég að þetta væri algerlega ófært, því það var svo mikið af hryggjum á íshellunni, hún var á stöðugri hreyfingu og mikið af opnum sjó.“

„Sólin var lágt á lofti þegar ég var á ferðinni og allir skuggar mjög langir og þessi kalda sólarupprásar- og sólsetursbirta mjög flott. Þetta var mjög tilfinningarík ganga. Þegar maður gengur á Suðurpólinn er útsýnið það sama dag eftir dag. En á Norðurpólnum er þetta mjög úfið og brotið landslag. Maður veit aldrei hvað er fyrir framan næsta hrygg,“ segir Leifur.


Tengdar fréttir

Móðurhjartað sló mikið eftir snjóflóðið

Móðir Ingólfs Axelssonar Everest-fara segist vera mjög þakklát fyrir að hann og Vilborg Arna Gissurardóttir séu heil á húfi eftir snjóflóðið mannskæða í fjallinu í gær.

"Þetta er litla barnið mitt“

Inga Ragnarsdóttir, fyrrum sjúkranuddari handboltalandsliðsins, segist smeyk að vita af syni sínum á Everest-fjalli.

Ingólfur er heill á húfi

"Ingó is OK!" stendur á heimasíðunni ingoax.is þar sem fylgst er með ferðalagi Ingólfs á Everest

Ber óendanlega virðingu fyrir Everest

Vilborg Arna Gissurardóttir ætli sér að verða fyrst íslenskra kvenna til að sigra þetta hæsta fjall jarðar, en það er 8.848 metrar að hæð.

Móðir Vilborgar: „Hún er þjóðarstolt“

"Ég er nokkuð viss í mínu hjarta að hún haldi áfram ef það er möguleiki. Ég verð samt voðalega fegin þegar hún er komin niður aftur. Hún er alltaf stelpuskottið.“

„Það er engin leið að útskýra hvernig manni líður“

"Þennan dag bar margt fyrir sjónir sem ég á aldrei eftir að gleyma, en ég ætla ekki endilega að reyna að koma því í orð,“ segir Vilborg Arna Gissurardóttir, sem hefur ekki ákveðið framhaldið. Það sé ekki forgangsatriði að svo stöddu.

Þrettán látnir í snjóflóði á Everest

Að minnsta kosti þrettán eru látnir í snjóflóði sem féll í hlíðum Everest snemma í morgun. Þetta er talið eitt mannskæðasta slys í sögu Everest.

Að sigra tindinn

Á föstudaginn langa féll snjóflóð í vesturhlíðum Everest með þeim afleiðingum að sextán fjallaleiðsögumenn, allt sjerpar, létust.

Leit að mönnunum á Everest hætt

Skipulagðri leit að fjallaleiðsögumönnunum þremur á Everest er nú formlega hætt. Leitin hefur staðið yfir frá því að snjóflóðið féll í fyrradag en leitarskilyrði hafa verið slæm.

Hóta að hætta við allar ferðir á Everest

Fjallaleiðsögumenn á Everest, eða sherpar, hafa hótað að hætta við allar ferðir á fjallið í kjölfar mannskæðasta slyss í sögu þess, þegar snjóflóð féll á föstudagsmorguninn.

Ingólfur heldur áfram

Ingólfur Axelsson segist ætla að halda áfram fjallgöngu sinni á Everest-fjall en Vilborg Arna Gissurardóttir ætlar að gefa sér nokkra daga áður en hún ákveður framhaldið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×