Fótbolti

Geir um handtökurnar: Mikið áfall fyrir knattspyrnuhreyfinguna

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
„Á þessari stundu veit ég ekkert meira en það sem hefur komið fram í fjölmiðlum,“ sagði Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, í samtali við Guðjón Guðmundsson, aðspurður um handtökur á sjö hátt settum stjórnarmönnum FIFA í nótt. Mennirnir sem um ræðir voru ákærðir í Bandaríkjunum en þeir eru sakaðir um spillingu; peningaþvætti og mútustarfsemi.

Handtökurnar fóru fram á hóteli í Zürich í Sviss þar sem ársþing FIFA fer fram á föstudaginn. Þar verður kosið til forseta sambandsins en hinn mjög svo umdeildi Sepp Blatter sækist eftir endurkjöri. Geir var nýkominn til Zürich, ásamt Klöru Bjartmarz, framkvæmdarstjóra KSÍ, þegar Guðjón náði tali af honum.

Þarf að grípa inn í þegar menn brjóta lög

„Evrópuþjóðirnar munu funda á morgun og við bíðum fundarins og væntum þess að fá frekari upplýsingar þá,“ sagði Geir sem bætti því við hann hefði ekki farið varhluta af þeirri háværu umræðu um spillingu innan FIFA.

„Alls ekki og þetta er mikið áfall. En auðvitað þarf að grípa inn í þegar menn brjóta lög. Ef þessir einstaklingar verða ákærðir og dæmdir er það mikið áfall fyrir knattspyrnuhreyfinguna,“ sagði Geir ennfremur en telur hann að Blatter hafi jafn víðtækan stuðning og hann hafði fyrir atburði næturinnar?

John Oliver kann betur en flestir að útskýra flókin mál á einfaldan og skemmtilegan hátt. Hér fer hann í saumana á FIFA og Sepp Blatter.

„Ég þori ekkert að segja um það en þetta hlýtur að hafa áhrif. Maðu veltir því fyrir sér hvort kosningin geti yfirhöfuð farið fram vegna þessara atburða,“ sagði Geir en á blaðamannfundi sem FIFA boðaði til í morgun sagði Walter De Gregorio, fjölmiðlafulltrúi sambandsins, að kosningarnar myndu fara fram sama hvað.

Evrópa er bara með 52 atkvæði

Aðspurður um stuðning við Blatter og hvort KSÍ muni fylgja skoðun UEFA hafði Geir þetta að segja: „Við höfum jafnan gert það. Það er röng túlkun að KSÍ hafi alltaf stutt Blatter, við studdum fyrst og fremst Lennart Johannsson í kjörinu gegn Blatter á sínum tíma (1998) en urðum undir þar.

„Síðan hefur hann verið endurkjörinn auðveldlega og hefur mikinn stuðning víðast hvar í heiminum. Evrópa hefur bara 52 atkvæði af 209,“ sagði Geir en Blatter var búinn að gefa það út að þetta yrði hans síðasta kjörtímabil.

Hann stóð ekki við þau orð og stefnir á að sitja á forsetastóli næstu árin. Það hefur skapað mikla úlfúð meðal Evrópuþjóða að sögn Geirs.

Hlusta má á viðtalið í heild sinni hér að ofan.


Tengdar fréttir

Forsetakjör FIFA fer fram

Walter De Gregorio, fjölmiðlafulltrúi FIFA, segir líklegt að kosningarnar til forseta sambandsins fari fram á föstudaginn þrátt fyrir aðgerðir svissnesku lögreglunnar í nótt, þar sem sex háttsettir stjórnarmenn FIFA voru handteknir í Zürich.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×