Fótbolti

Geir kallar eftir breytingum innan FIFA: Þetta er óþolandi staða

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ.
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ. Vísir/Anton
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, fundaði í dag með öðrum þjóðum innan UEFA, og niðurstaða fundarins var að öll aðildarlönd UEFA ætla að styðja jórdanska prinsinn Ali bin al Hussein á móti Sepp Blatter í forsetakosningum FIFA.

„Fulltrúar allra knattspyrnulanda Evrópu hittust í dag og við vorum sammála um það að styðja tillögu formannsins Michel Platini um að styðja prins Ali á morgun," sagði Geir Þorsteinsson í viðtali við Valtý Björn Valtýsson á íþróttadeild 365.

„Platini átti samtal við Blatter í morgun og hvatti hann til að stíga til hliðar en hann féllst ekki á það. Það kom því tillaga frá forseta UEFA um að við myndum öll standa saman og styðja prins Ali," sagði Geir.

Knattspyrnusamband Evrópu vildi fresta forsetakosningum FIFA en önnur álfusambönd innan FIFA voru á öðru máli.

„Blatter hefur haft mjög mikið fylgi í öðrum heimsálfum en Evrópu en eftir atburði gærdagsins þá verður spennandi að sjá hvað gerist á morgun," sagði Geir. Hvernig er andrúmsloftið út í Zürich í Sviss þessa stundina?

„Það var mjög erfitt í gær og er erfitt. Því er ekki að leyna. Þetta er orðin mjög alvarleg staða og það er ekkert hægt að segja annað," sagði Geir.

Það hefur orðrómur um spillingu í valdatíð Sepp Blatter í mörg ár og þetta kom mönnum væntanlega ekki mikið á óvart?

„Það var vitað að þetta mál væri í gangi hjá FBI. Svo gerðist þetta í gær og niðurstaðan er afdráttarlaus virðist vera. Málið er mjög alvarlegt," sagði Geir en hver er tilfinning formanns KSÍ fyrir kosningunni á morgun?

„Ég vona að við náum að gera nauðsynlegar breytingar. Það þarf að breyta til innan FIFA. það er alveg augljóst. þetta er óþolandi staða sem við erum í," sagði Geir.


Tengdar fréttir

Meint mútuþægni hjá toppum FIFA nær aftur til 1990

Bandarísk yfirvöld ákæra níu yfirmenn FIFA. Þeirra á meðal er varaforseti FIFA, Jeffrey Webb. Sepp Blatter, forseti FIFA, er ekki á meðal hinna ákærðu. Fjölmiðlafulltrúi FIFA segir sambandið fórnarlamb málsins.

Geir og félagar snúa baki við Sepp Blatter

Knattspyrnusamband Evrópu var eina álfusambandið sem vildi fresta forsetkosningum FIFA vegna handtakanna í Zurich í gær en aðildarlönd UEFA ætla samt sem áður að taka þátt í kosningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×