Handbolti

Geir: Vorum sterkari andlega á lokakaflanum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Geir gefur skipanir í fyrri leiknum.
Geir gefur skipanir í fyrri leiknum. vísir/stefán
Geir Sveinsson var að vonum sáttur eftir að íslenska karlalandsliðið í handbolta tryggði sér sæti á HM í Frakklandi 2017 í kvöld, þrátt fyrir eins marks tap, 21-20, fyrir Portúgal á útivelli.

„Verkefnið var ljóst, að koma okkur til Frakklands, og við höfðum 120 mínútur til þess. Niðurstaðan er að við förum áfram á markatölu en það skiptir engu,“ sagði Geir í samtali við Vísi eftir leikinn í kvöld.

Íslenska liðið vann fyrri leikinn í Laugardalshöllinni á sunnudaginn 26-23 og einvígið samanlagt 46-44.

Staðan var 10-7 í hálfleik í leiknum í kvöld og eins og tölurnar gefa til kynna var sóknarleikur íslenska liðsins skelfilegur í fyrri hálfleik. Þrátt fyrir það var munurinn aðeins þrjú mörk.

„Það var vel af sér vikið að vera bara þremur mörkum undir. Við þurftum að stilla spennustigið, fækka tæknifeilunum og nýta færin okkar betur. Og það sem við töluðum um að gera í hálfleik tókst í seinni hálfleik.

„Við þurftum að ná meiri stjórn á sjálfum okkur,“ sagði Geir sem var ósáttur með hversu illa íslenska liðið fór með færin sín í fyrri hálfleik.

„Við fengum færin en nýttum þau ekki. Það var langmesti höfuðverkurinn auk þess að vera með átta tapaða bolta. Þetta tvennt var það sem var helst að í fyrri hálfleik.“

Þrátt fyrir erfiðleika í sókninni var varnarleikurinn góður allan leikinn og Björgvin Páll Gústavsson varði vel í markinu.

„Þetta voru gríðarlega flottir leikir hjá Bjögga og ekki síður hjá vörninni. Hinir svokölluðu þristar stóðu sig einstaklega vel. Svo sýndum við karakter, gáfumst ekki upp og hættum aldrei,“ sagði Geir sem vildi þó sjá þessa góðu vörn og markvörslu skila fleiri hraðaupphlaupum í báðum leikjunum.

„Það er nú eiginlega tilgangurinn með góðum varnarleik, að fá þessi ódýru mörk, og það gekk því miður engan veginn í fyrri hálfleik. En það lagaðist í seinni hálfleik.“

Að sögn Geirs vó reynslan í íslenska liðinu líka þungt á lokakaflanum.

„Þetta var basl og barátta og þegar uppi var staðið vorum við kannski sterkari andlega á lokakafla leiksins. Ég skynjaði það svolítið hjá Portúgölunum, þeir eru búnir að byggja upp virkilega gott landslið en það vantar að brjóta þennan ís og komast inn á lokamót. Þeir hafa ekki þessa reynslu af svona leikjum sem margir okkar leikmanna hafa,“ sagði Geir að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×