Handbolti

Geir: Vil taka það jákvæða úr leiknum

Arnar Björnsson skrifar
„Þetta er svona pínu svekkelsi,“ sagði landsliðsþjálfarinn, Geir Sveinsson, við Vísi eftir leik í kvöld.

„Við töpuðum leiknum á endanum með sex mörkum og seinni hálfleiknum með átta mörkum ef við drögum frá forystuna sem við höfðum í hálfleik. Heilt yfir kannski pínu svekkelsi með það. En ég sá mjög margt jákvætt og ég vil í raun draga það jákvæða út úr þessu. Frábær fyrri hálfleikur og menn voru að reyna alveg fram til þess síðasta. Við megum ekki gleyma því að Spánverjar eru með gríðarlega öflugt og reynt lið þó svo að það séu nokkrir nýir inn á milli hjá þeim. Þetta er ofboðslega þéttur pakki sem er þungt og erfitt að eiga við og kostar mikla orku og kraft. Það kom kannski pínu í ljós undir lokin.“

Þið fáið á ykkur sex mörk á fyrstu 20 mínútunum og spænski þjálfarinn var búinn að skipta eiginlega öllu byrjunarliðinu útaf.

„Vvið virkilega fundum taktinn og Bjöggi var náttúrulega gríðarlega öflugur fyrir aftan og tekur þrjú vítaköst í fyrri hálfleiknum. Það var mikil og góð stemning í liðinu. Auðvitað er ég gríðarlega ánægður með það. Svo byrjum við seinni hálfleikinn í sjálfu sér vel. Við stöndum nokkuð þétt varnarlega og búum til ágætis færi en náum ekki að nýta þau. Við klikkum á þremur fjórum og þeir komast yfir. Þá fór þetta hægt og sígandi niður á við,“ sagði þjálfarinn svekktur.

Sjálfstraustið sem geislaði af mönnum í fyrri hálfleik þegar skotin fóru í markið en í seinni hálfleik munaði hársbreidd að við næðum að skora.  

„Það sem mér hefði þótt verra er ef við hefðum ekki verið að búa til einhver marktækifæri. Mér fannst við vera að gera það. Stundum komu þvinguð skot sem við urðum að taka og spænski markvörðurinn var auðvitað gríðarlega öflugur. Það gerði að verkum að við náðum ekki að nýta færin sem okkur bauðst. Við drögum það jákvæða út og lærum af því sem miður fór í seinni hálfleik. Vonandi tekst okkur að nýta það gegn Slóveníu.“

Hvernig ætlar þú að nýta tímann fram að Slóveníuleiknum?

„Við eigum frídag á morgun og það er kærkomið. Síðan koma tveir leikir með sólarhringsmillibili. Við höldum ótrauðir áfram, skoðum þennan leik og förum yfir hann á morgun og eftir hádegið byrjum við að undirbúa leikinn gegn Slóvenum.“

Þú rúllaðir vel á liðinu og fékk auðvitað svör við mörgum spurningum.

    

„Við erum með fínan og flottan hóp og við treystum þeim öllum fyrir verkefninu. Annars væru þeir ekki hérna. Það skipti ekki máli hvort menn eru ungir eða gamlir. Allir vildu koma inn á og við reynum að ná sem mestu út úr hópnum. Það er nokkuð sem okkur langar til að gera í þessari keppni að reyna að fá sem mest út úr öllum.“

Ekki missa af neinu sem gerist á HM í Frakklandi. Vísir er með öflugt fréttateymi á mótinu sem færir ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).


Tengdar fréttir

Janus Daði: Hættum að geta skorað

Janus Daði Smárason þreytti frumraun sína á stórmóti þegar Ísland tapaði 27-21 fyrir Spáni á HM í Frakklandi í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×