Handbolti

Geir: Var á leið að borðinu að taka leikhlé

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
„Akkúrat núna er ég ókátur með að hafa ekki unnið,“ segir Geir Sveinsson landsliðsþjálfari en þó svo lið hans hafi kastað frá sér sigrinum er það komið í 16-liða úrslit.

„Ég get ekki breytt útkomunni en miðað við hvernig leikurinn þróaðist er ég ókátur. Svo var líka að við lentum allt í einu undir. Heilt yfir spilum við ekki nógu vel síðustu tíu mínúturnar í leiknum.“

Byrjunin á leiknum var skrautleg. Makedónía skoraði fjögur mörk í röð en Ísland svaraði með fimm í röð.

„Ég var drulluóánægður með dómarana í upphafi. Makedónarnir fengu að taka 30-40 sekúndur áður en þeir byrjuðu að spila handbolta. Það var með ólíkindum. Svo kviknaði á okkur og við vinnum ljómandi vel úr okkar spilum í 40-50 mínútur. Svo missum við frumkvæðið og áræðnina. Fljótt á litið virðumst við hafa farið að verja hlutina í stað þess að sækja.“

Ísland vann boltann er 50 sekúndur voru eftir af leiknum og tók skot er 18 sekúndur voru eftir. Geir átti þá leikhlé sem hann tók ekki.

„Leikhléið var alveg að fara að koma. Það voru 18 sekúndur eftir og engin hönd komin upp. Það var allt í góðu. Þurftum eitt fríkast og þá hefðum við tekið leikhlé. Rúnar fann þarna gott skotfæri og ég er ekkert óhress með hann. Þetta snérist um 2-3 sekúndur og þá hefði leikhléið komið. Ég var að fara að borðinu til þess að taka leikhlé.“

Niðurstaðan er leikur við Frakka í Lille og það verður heldur betur verðugt verkefni.

„Við þurfum að ná þessu svekkelsi úr okkur því við töldum Noreg vera álitlegri kost en Frakkland. Við breytum ekki niðurstöðunni og verðum að snúa þessu upp í ánægju. Frábært tækifæri að spila við eitt besta lið í heimi á þeirra heimavelli. Í þessu öllu má ekki gleyma því að markmið okkar náðist að komast upp úr riðlinum. Það er ég auðvitað ánægður með.“

Ekki missa af neinu sem gerist á HM í Frakklandi. Vísir er með öflugt fréttateymi á mótinu sem færir ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).


Tengdar fréttir

Umfjöllun: Makedónía - Ísland 27-27 | Strákarnir köstuðu frá sér sigrinum

Strákarnir okkar munu mæta Frökkum í Lille á laugardag en ekki Norðmönnum í Albertville eftir að hafa kastað frá sér sigri gegn Makedóníu. Algert hrun á lokamínútunum og liðið mátti jafnvel telja sig heppið að hafa sloppið með jafntefli. En liðið er komið áfram og á það var stefnt.

Aron Rafn: Þetta var skítt

Aron Rafn Eðvarðsson átti fína innkomu í íslenska markið gegn Makedóníu en það dugði ekki til.

Lino Cervar: Ég er með sterkt hjarta

Lino Cervar, þjálfari Makedóníu, var sáttur eftir jafntefli á móti Íslandi í Metz á HM í handbolta í kvöld en stigið tryggði Makedóníu þriðja sætið í riðlinum og forðaði þeim frá því að mæta Frökkum í sextán liða úrslitunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×