Fótbolti

Geir: Ráðning Lars ein farsælasta ákvörðunin mín

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Geir Þorsteinsson réð Lars Lagerbäck til starfa í október 2011.
Geir Þorsteinsson réð Lars Lagerbäck til starfa í október 2011. vísir/daníel/anton
Strákarnir okkar í íslenska fótboltalandsliðinu eru í 28. sæti á nýjum FIFA-lista sem gefinn var út í morgun, en Ísland er efsta Norðurlandaþjóðin á listanum í fyrsta skipti í sögunni.

Ísland hefur hækkað sig um 103 sæti frá því í apríl 2012 eftir fyrstu tvo leiki Lars Lagerbäcks í starfi landsliðsþjálfara, en hann og HeimirHallgrímsson hafa náð ótrúlegum árangri saman.

Íslenska liðið er í efsta sæti A-riðils undankeppni EM 2016 með níu stig eða fullt hús eftir flotta sigra á Tyrkjum, Lettum og Hollendingum. Þá á Ísland enn eftir að fá á sig mark.

Það liggur ljóst fyrir að ráðningin á Lars Lagerbäck eru kaflaskil í íslenskri knattspyrnusögu og Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, er eðlilega hæstánægður með sinn mann.

„Ég held að ráðningin á Lars sé ein af þeim farsælli ákvörðunum sem við höfum tekið. Ég veit ekki hvort hún er sú besta, en jú, segjum það bara. Hún er sú besta í dag,“ sagði Geir í viðtali við útvarpsþáttinn fótbolti.net á X-inu 977 síðasta laugardag.

Geir var þá í sjöunda himni eftir 2-0 sigur Íslands á Hollandi, en strákarnir okkar skelltu bronsliði HM og allir vita á Laugardalsvellinum.

Formaðurinn sagðist hafa fastmótaðar hugmyndir um hverja hann vildi fá inn í landsliðsstarfið og réð aðstoðarmanninn í raun áður en hann réð aðalþjálfarann.

„Ég var búinn að tala við Heimi Hallgrímsson og biðja hann um að koma að starfinu. Það gerði ég þegar hann sagðist ætla að hætta hjá ÍBV. Ég var með ákveðnar hugmyndir um hvern ég vildi fá í starfið. Ég tel ráðninguna á Heimi líka mjög farsæla ákvörðun. Þeir vinna vel saman,“ sagði Geir.

Fleiri menn voru orðaðir við starfið á sínum tíma, menn á borð við Bretana SteveCoppell og Roy Keane.

„Ég ræddi ekki við Steve Coppell, en ég fundaði með Roy Keane. Í mínum huga var það alveg ljós að Lars var númer eitt. Það var líka því ég hef kynnst honum í gegnum mitt starf,“ sagði Geir.

„Eftir að Lars lét vita að hann hefði áhuag á starfinu var þetta bara spurning um fjárhagslegu hliðina þá var þetta ekki spurning og hún gekk upp,“ sagði Geir Þorsteinsson.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×