Íslenski boltinn

Geir: Ég er að valda mörgum vonbrigðum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Geir Þorsteinsson tilkynnti í dag að hann muni ekki bjóða sig fram til formannsembættis Knattspyrnusambands Íslands eins og hefur verið fjallað um á Vísi í dag. Hann hefur gegnt embættinu í tíu ár og starfað linnulaust hjá KSÍ undanfarin 24 ár.

„Þetta hefur verið langur tími og starfið krefjandi og slítandi. Maður þarf að vera sannfærður um að hafa kraft og dug til að takast á við þau verkefni sem eru fram undan,“ sagði Geir í samtali við Guðjón Guðmundsson en viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.

Geir fékk mótframboð seint á síðasta ári þegar Guðni Bergsson, fyrrum landsliðsfyrirliði, tilkynnti framboð sitt. Þá er Björn Einarsson, formaður Víkings, einnig að íhuga framboð.

Sjá einnig: Geir gefur ekki kost á sér til formanns KSÍ

Geir segir að sú umræða hafi vakið hann til umhugsunar, sem og framboð Guðna. „Það opnaðist líf í framboðsmálum sem ég átti ekki von á eftir gott gengi en þannig er það bara. Þess vegna lagðist ég undir feld á milli jóla og áramóta og hugsaði minn gang. Hvað væri rétt að gera, bæði fyrir mig og KSÍ.“

Formaðurinn segist ver að skila góðu búi af sér. Bæði hafi knattspyrnulandsliðin aldrei staðið sig betur innan vallarins og að fjármál KSÍ hafi aldrei verið í betra horfi.

Hann segir að almenn umræða hafi veirð í knattspyrnuhreyfingunni um að takmarka setu þeirra sem gegna forystuhlutverkum. Það hafi haft sitt að segja. Geir er þó með opinn hug fyrir því að halda framboði sínu til stjórnar Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, til streitu.

Sjá einnig: Geir telur að hann hefði unnið formannskjörið: „Góðir stjórnunarhættir að stíga til hliðar“

„Ef stjórn KSÍ vill það og FIFA og UEFA gefa sitt leyfi á það þá er ég tilbúinn til þess,“ segir Geir sem segist hafa fengið sterk viðbrögð við ákvörðun sinni.

„Það var pressa á mér að halda áfram og ég er að valda mörgum vonbrigðum. En ég verð að vera sáttur við mína ákvörðun sjálfur og ég tel að þetta sé góður tímapunktur til að stíga til hliðar.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×