Sport

Geggjaður upphitunarþáttur fyrir bardaga Conor og Diaz

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Heimurinn er að bíða eftir bardaga númer tvö hjá Conor McGregor og Nate Diaz og UFC kann að stytta biðina.

Ráðist var í gerð heimildarmyndar um ríginn á milli þeirra tveggja. Er óhætt að segja að vel hafi tekist til enda Bandaríkjamenn snillingar í framleiðslu slíkra mynda.

Myndin heitir „Bad Blood“ og eru ítarleg viðtöl við kappana í myndinni og kíkt á bak við tjöldin. Er meðal annars staldrað við á Íslandi þar sem Conor dvaldi er hann eftirminnilega hætti í UFC í tvo daga.

Bardagi þeirra fer fram um næstu helgi og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Hér að ofan má svo horfa á Bad Blood.

MMA

Tengdar fréttir

Conor gerði glímukappana brjálaða

Írinn Conor McGregor er nú kominn á svarta listann hjá glímugaurunum í Bandaríkjunum eftir að hann kallaði þá aumingja.

Diaz hræddi stuðningsmenn Conor

Spjallþáttastjórnandinn Jimmy Kimmel fékk bardagakappann Nate Diaz til að taka þátt í frábæru atriði í vikunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×