Golf

Geggjað að vera undir pari þrjá daga af fjórum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ólafía Þórunn lék á fimm höggum undir pari á Bahamaeyjum.
Ólafía Þórunn lék á fimm höggum undir pari á Bahamaeyjum. MYND/GSÍ/SETH@GOLF.IS
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir lauk keppni á Pure Silk Bahama Classic mótinu á Bahamaeyjum í gærkvöldi. Þetta var frumraun hennar á stærsta sviðinu, LPGA mótaröðinni, þeirri sterkustu í heimi.

„Ég er mjög sátt. Það var geggjað að ná niðurskurði og vera undir pari á þremur dögum af fjórum,“ sagði Ólafía í samtali við Fréttablaðið í gærkvöldi.

Ólafía lauk keppni á fimm höggum undir pari og endaði í 69.-72. sæti af 108 keppendum. Ólafía lék frábært golf fyrstu tvo keppnisdagana og var samtals á sjö höggum undir pari eftir þá. Dagur tvö var sérstaklega góður hjá Ólafíu en þar tapaði hún ekki höggi, lék á fimm höggum undir pari og komst auðveldlega í gegnum niðurskurðinn. En fór frammistaðan fram úr hennar björtustu vonum?

Hugsar væntingalaust

„Ég myndi ekki segja það. Ég hugsa væntingalaust, þannig stend ég mig best. Ég trúi að ég geti spilað mjög vel en hugsa ekki mikið um það,“ sagði Ólafía.

Henni tókst ekki jafn vel upp á þriðja deginum. Þar fékk Ólafía fimm skolla, aðeins einn fugl og tók tvisvar sinnum víti á hringnum. Hún lék þriðja hringinn á samtals fjórum höggum yfir pari.

Leið skringilega

Ólafía segir að henni hafi liðið undar­lega á laugardaginn og hreinlega ekki verið með sjálfri sér.

„Dagar eitt, tvö og fjögur voru mjög svipaðir. Það fóru bara fleiri pútt ofan í annan daginn. Þriðji dagurinn var „off-dagur“. Mér leið skringilega og gat ekki einbeitt mér. Mér leið eins og einhverri allt annarri,“ sagði Ólafía sem útilokar ekki að þreyta hafi gert vart við sig.

Hún fór í stóra kjálkaaðgerð fyrir jól en það getur tekið nokkrar vikur að jafna sig á henni.

„Það gæti verið. Ég var svolítið þreytt. En ég var aðeins frískari í dag og náði að hvílast vel. Ég fór líka til sjúkraþjálfara og fékk nudd,“ sagði Ólafía sem náði sér mun betur á strik í gær. Þar fékk hún fjóra fugla og lék alls á tveimur höggum undir pari.

Vinkonan hjálpaði til

Mótið á Bahamaeyjum er það stærsta á ferli Ólafíu. Þrátt fyrir það segist hún ekki hafa fundið fyrir stressi úti á vellinum. Það hafi líka hjálpað að vera með vinkonu sinni í ráshóp fyrstu tvo dagana.

„Þetta var ótrúlega gaman og ekkert stress. Ég var heppin að vera með Cheyenne Woods í ráshóp, það hjálpaði mér mikið að vera afslöppuð. Það var mjög gaman hjá okkur,“ sagði Ólafía en þær Woods voru saman í Wake Forest-háskólanum í Norður-Karólínu.

Ástralía næst á dagskrá

Ólafía segir að frammistaðan á mótinu á Bahamaeyjum gefi henni byr undir báða vængi fyrir framhaldið.

„Þetta gefur mér meira sjálfstraust og meiri reynslu. Ég held áfram að reyna að bæta mig,“ sagði Ólafía sem ætlar að slappa af á Bahamaeyjum í dag. Síðan tekur við undirbúningur fyrir næsta mót sem fer fram í Adelaide í Ástralíu 16.-19. febrúar.

„Ég tek einn aukadag hér og fer svo til Orlando í fimm daga. Ég kem svo til Íslands og nokkrum dögum síðar fer ég til Ástralíu,“ sagði Ólafía sem býst við að undirbúningurinn fyrir mótið í Ástralíu verði svipaður og fyrir mótið um helgina.

„Mesta áherslan er á stutta spilið og gæði í slættinum. Ég held að ég sé á réttri leið með æfingarnar.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×