Sport

Gefur verðlaunaféð til langveikra barna

Telma Tómasson skrifar
Árni Björn Pálsson afreksknapi kom, sá og sigraði í keppni í fimmgangi í Meistaradeildinni í hestaíþróttum í gærkvöldi með fagmannlegri og öruggri sýningu á hestinum Oddi frá Breiðholti í Flóa.

Sjá má brot frá fimmgangskeppninni í meðfylgjandi myndbandi.

Árna Birni hefur gengið afburðavel í Meistaradeildinni í ár, hefur unnið þrjár síðustu keppnisgreinar og er nú búinn að stinga aðra keppendur af í stigasöfnun í mótaröðinni. Hann sagði þó að lokinni keppni í gærkvöldi að sigurinn hefði komið sér á óvart:

„Þetta var ótrúlegt...ég átti engan veginn von á þessu.“

Árna Birni gengur vel í Meistaradeildinni.
Verðlaunafé fellur knapa í skaut sem sigrar í Meistaradeildinni, en Árni Björn hefur gefið allt sem komið hefur í hans hlut til Styrktarsjóðs langveikra barna. Aðspurður um málið sagðist hann aldrei hafa greint frá því áður.

„Ég ætlaði nú aldrei að segja frá þessu því ég er ekki að sækjast eftir auglýsingu fyrir sjálfan mig, það er hugurinn á bak við þetta sem skiptir máli.“

Hesturinn sem Árni Björn keppti á er í eigu Kára Stefánssonar, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar. Kári var að vonum himinsæll með árangurinn, en hann fylgdist vel með fimmgangskeppninni úr áhorfendastúkunni.

Niðurstöður A-úrslita voru eftirfarandi:

1. Árni Björn Pálsson - Oddur frá Breiðholti í Flóa - 7.26

2. Daníel Jónsson - Þór frá Votumýri 2 - 7.21

3. Hulda Gústafsdóttir - Birkir frá Vatni - 7.10

4. Ísólfur Líndal Þórisson - Sólbjartur frá Flekkudal- 7.00

5. Sigurður Vignir Matthíasson - Gormur frá Efri-Þverá - 6.64

6. Hinrik Bragason - Hervar frá Hamarsey - 6.62

Frekari niðurstöður er að finna á meistaradeild.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×