Lífið

Gefur fjölskyldu sinni herpes í jólagjöf

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Í krukkunni er líka herpes rúsína.
Í krukkunni er líka herpes rúsína.
„Ég er búin að hugsa uppá síðkastið hvað ég ætti í raun og veru að gefa fjölskyldunni minni í jólagjöf,“ segir spéfuglinn Helga Haralds í nýju myndbandi á Facebook-síðu sinni.

„Upp kom sú hugmynd að gefa þeim krukku og þetta er nú engin venjuleg krukka,“ bætir hún við en Helga vill eyða sem minnstu í jólagjafir á ári hverju.

„Það sem ég reyni oftast nær að leggja í jólagjafirnar mínar er allra minnst og þá meina ég allra minnst af kröftum, allra minnst af hugsun og allra minnst af peningum. Þannig að þetta er ekki létt verk.“

Helga er á því að henni hafi tekst vel upp að finna jólagjöfina í ár en það er „hvorki meira né minna en krukka af herpes,“ sem hún sýnir í meðfylgjandi myndbandi. Með krukkunni fylgir einnig lítil herpes rúsína.

„Bara til að hafa gleðina meiri og líka ef þú ert svangur,“ segir Helga. Þá býður hún sínum nánustu einnig upp á krukku af flatlús.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×