Gefa skýrslu um fundinn fræga 7. febrúar nái Landsdómsmál fram að ganga

Vísir Innlent 06. febrúar 2012 19:13
Geir H. Haarde og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Ingibjörg Sólrún ritaði í dagbók sína að fundurinn með bankastjórum Seðlabankans 7. febrúar 2008 hefði verið
Geir H. Haarde og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Ingibjörg Sólrún ritaði í dagbók sína að fundurinn með bankastjórum Seðlabankans 7. febrúar 2008 hefði verið "eins manns útaustur," og átti þar við Davíð Oddsson.
Þorbjörn Þórðarson skrifar:
Verði ákæra á hendur Geir H. Haarde ekki felld niður fær þjóðin í fyrsta sinn frásögn fyrir dómi um hvaða upplýsingum bankastjórn Seðlabankans kom á framfæri við þrjá ráðherra í ríkisstjórninni um alvarlega stöðu íslensku bankanna sjöunda febrúar 2008. Fimmtíu og sex eru á vitnalista ákæruvaldsins í málinu en þar má finna ráðherra, bankastjóra og embættismenn.

Næsti fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar verður 14. febrúar næstkomandi þar sem nefndin mun áfram fjalla um tillögu formanns Sjálfstæðisflokksins um afturköllun ákærunnar í Landsdómsmálinu.

Fari svo að tillagan gangi til atkvæða í þinginu og verði felld mun aðalmeðferð í Landsdómsmálinu hefjast hér í Þjóðmenningarhúsi hinn 5. mars næstkomandi. Og er búist við því að hún taki ekki mikið meira en tvær vikur.

Geir krefst aðallega sýknu í greinargerð sinni þar sem refsiheimildir sem hún byggir á séu svo matskenndar og óljósar að þær brjóti gegn meginreglu 69. gr. stjórnarskrárinnar um skýrleika refsiheimilda. Í þessu mun reyna á að að sakborningurinn, í þessu tilviki Geir, hafi mátt gera sér grein fyrir að í lögum væri mælt fyrir um að hið meinta aðgerðaleysi hans sem forsætisráðherra hafi verið refsivert.

Það ákvæði sem Geir er ákærður fyrir í 10. gr. laga um ráðherraábyrgð hafa oft verið nefnd ráðsmennskubrot. Er talið að það eigi við þegar ráðherra hefur brotið gegn viðmiðum um hvernig góðum og gegnum embættismanni í hans stöðu beri að bregðast við aðsteðjandi hættu.

Vitnalisti ákæruvaldsins í Landsdómsmálinu er langur en þar eru m.a Davíð Oddsson, og meðráðherrar Geirs úr ríkisstjórninni. Eitt af því sem tekist verður á fyrir dómi og hefur þýðingu fyrir sönnunarfærslu á meintu saknæmu aðgerðaleysi Geirs eru upplýsingar sem komu fram á fundi hans, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur og Árna Mathiesen á fundi með bankastjórn Seðlabankans hinn 7. febrúar 2008. Um þennan fund segir í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis:

„Forsætisráðherra, utanríkisráðherra og fjármálaráðherra áttu fund með bankastjórn Seðlabanka Íslands 7. febrúar 2008. Á fundinum dró formaður bankastjórnar Seðlabankans upp mjög dökka mynd af stöðu og framtíðarhorfum íslensku bankanna. Upplýsingarnar bentu til yfirvofandi hættu fyrir íslenskt efnhagslíf."

Meðal þess sem Geir er ákærður fyrir er að hafa ekkert aðhafst eftir þennan fund til að draga úr tjóni fyrir íslenskt samfélag. En í ákæruskjalinu segir: „Forsætisráðherra átti ekki frumkvæði að formlegum ráðherrafundi um ástandið né heldur gaf hann ríkisstjórninni sérstaka skýrslu um vanda bankanna eða hugsanleg áhrif hans á íslenska ríkið."

Rétt er að halda því til haga að í andmælabréfi lýsti Ingibjörg Sólrún fundinum svona, en hún mun hafa ritað þetta hjá sér í dagbók eftir fundinn: „Engar tillögur eða ábendingar komu fram um það sem ríkisstjórnin ætti að gera í málefnum bankanna. Fundurinn einkenndist af því að þetta var eins manns útaustur." Þarna var utanríkisráðherra að vitna til framgöngu Davíðs Oddssonar á fundinum, en þessar upplýsingar koma fram í andmælabréfi Ingibjargar Sólrúnar til rannsóknarnefndarinnar í 21. kafla skýrslunnar.

Gangi málið eftir eftir verða skýrslutökur yfir öllum sem sátu þennan fund, þar sem þau munu þurfa að útskýra nákvæmlega hvaða upplýsingar komu fram þarna, 7 mánuðum fyrir fall viðskiptabankanna, fyrir framan dómara Landsdóms og íslensku þjóðina. thorbjorn@stod2.is

Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 24. maí. 2012 21:34

Verjandi líkti al-Thani málinu við mál Mladic

Ragnar H. Hall, verjandi Ólafs Ólafssonar, í al Thani málinu líkti stöðu sakborninga þess ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 21:30

Björk fékk Webby verðlaunin

Björk Guðmundsdóttur voru veitt Webby verðlaunin í vikunni í flokknum listamaður ársins. ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 21:28

Búinn að skila meðmælendalista

„Við erum búin að skila meðmælendalistunum," segir Hannes Bjarnason, forsetaframbjóð...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 20:30

Íslendingar duga ekki á Drekasvæðið - gefast upp

Útgerðarmaðurinn sem er á leið í olíuleit á Drekasvæðinu segir að ekki þýði lengur að hafa...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 20:00

"Menntaskólakerfið er undirlagt af kannabisneyslu"

Magnús Stefánsson, forvarnarfulltrúi, hefur miklar áhyggjur af aukinni neyslu ungmenna á k...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 19:56

Jóhanna og Füle ræddu gjaldeyrishöftin

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, fundaði í dag með Stefan Füle, framkvæmdastjóra ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 19:30

Catalina lenti á Reykjavíkurflugvelli

Catalina flugbáturinn, sem verður helsti sýningargripur flugdagsins í Reykjavík, lenti á R...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 18:49

Verjandi Barkar furðar sig á umfjöllun fjölmiðla

Verjandi Barkar Birgissonar, sem grunaður er um að hafa banað mann á Litla Hrauni 17. maí ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 18:45

Íhuga að hætta við komu skemmtiferðaskips vegna tollalaga

Franskt félag íhugar að hætta við fyrirhugaða siglingu skemmtiferðaskips við Íslandsstrend...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 18:30

Fjölskyldufyrirtæki tapaði gengismáli

Skuldastaða yfir þúsund fyrirtækja er í uppnámi eftir að Hæstiréttur sýknaði Lýsingu nú sí...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 17:58

Hæstiréttur sýknar Fylki

Hæstiréttur sýknaði í dag Íþróttafélagið Fylkir af kröfum Sveins Rafns Eiðssonar en hann s...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 16:58

Byssumaður reyndist vera leikari

Sem betur fer eru útköll lögreglu stundum byggð á misskilningi. Þannig var því t.d. farið ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 16:42

Lögmenn Annþórs ósáttir við framgang lögreglu

Lögmenn Annþórs Kristjáns Karlssonar, sem grunaður er um að hafa banað Sigurði Hólm Sigurð...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 16:17

Í aðgerð vegna fótbrots - konan hryggbrotnaði

Karlmaðurinn, sem féll niður um 40 metra þegar að brún á Lágey Dyrhólaeyjar gaf sig í dag,...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 15:36

Könnuðust ekki við að styðja Ástþór

Stikkprufur sem yfirkjörstjórn í Norðausturkjördæmi hefur framkvæmt hefur leitt í ljós að ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 14:59

Þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram um tillögur stjórnlagaráðs

Þingmenn samþykktu nú á þriðja tímanum tillögur um þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögu stjórn...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 14:56

Íbúar kjósa um sameiningu í haust

Íbúar Garðabæjar og Álftaness munu í haust greiða atkvæði um það hvort að sameina eigi sve...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 14:48

Næstum helmingur ók of hratt í Sigtúni

Brot 46 ökumanna voru mynduð í Sigtúni í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 14:47

Kannabis í Kópavogi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Kópavogi eftir hádegi í gæ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 14:16

Björgunarsveitarmaður: Kraftaverk hvað þau sluppu vel

"Þetta er ekkert annað en kraftaverk,“ segir Grétar Einarsson úr björgunarsveitinni ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 14:08

Tekur 500 klukkustundir að fara yfir málskjölin

Ætla má að það taki verjendur 500 klukkustundir að fara yfir málskjöl í al-Thani málinu ge...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 14:00

Druslugangan haldin í annað sinn

"Þetta gekk rosalega vel í fyrra og þátttakan var framar öllum vonum. Þess vegna er ekkert...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 12:42

Tillaga um að setja ESB í þjóðaratkvæði í haust felld á þingi

Tillaga Vigdísar Hauksdóttur þingkonu Framsóknarflokksins um hvort efna skuli til þjóðarat...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 12:25

Vill að Alþingi kaupi Landsímahúsið undir skrifstofur

Falla á frá byggingaráformum á skrifstofuhúsnæði Alþingis við Austurvöll en kaupa þess í s...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 11:58

Féllu af syllu í Dyrhólaey

Fjórir ferðamenn duttu niður af syllu í Dyrhólaey í dag þegar hún gaf sig og slösuðust þrí...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 11:21

Ekki þorandi að flytja Börk í dóminn - úrskurðað um varðhald í fangelsinu

Kveða átti upp gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Annþóri Kristjáni Karlssyni og Berki Birgisson í...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 11:09

Viðbrögð Grétu og Jónsa - myndband

Gréta Salóme og Jónsi stóðu sig með stakri prýði í forkeppni Eurovision á þriðjudaginn. Þa...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 11:00

Allt að þriggja ára fangelsi liggur við brotum starfsmannanna

Fyrrverandi lögreglumennirnir hjá sérstökum saksóknara gætu átt yfir höfði sér allt að þri...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 10:10

Björk í samstarfi við bókasafn í New York

Björk Guðmundsdóttir er komin í samstarf við bókasafn í New York og aðrar stofnanir. Verke...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 09:17

Hreindýr trufla ökumenn

Hreindýr hafa verið á ferli í kringum Hallormsstaðaskóg undanfarið en um er að ræða hóp ta...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 08:01

Verkfall í Noregi

Um 25 þúsund opinberir starfsmenn í Noregi hófu í morgun verkfallsaðgerðir eftir að samnin...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 07:30

Barn fann amfetamín í leikskólanum

Fimm ára drengur fann í febrúar poka með amfetamíni á leikskólanum Jörfa. Nóg til að valda...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 15:16

Catalina að koma en flugsýningu frestað

Catalina-flugbáturinn, sem verður helsti sýningargripur flugdagsins í Reykjavík, er nú á l...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 07:00

Þyrla sótti veikan sjómann

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, sótti veikan sjómann í gær af bát sem var að veiðum aus...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 07:00

Vill ekki gefa ungu fólki falsvonir

Mögulegt er að lækka þurfi ávöxtunarkröfu lífeyrissjóðanna úr 3,5% vegna efasemda um að sv...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 06:30

Vill að borgin stöðvi háhýsi úr fortíðinni

Íbúi í Vesturbænum vill að borgin hindri að sjö hæða hús rísi við höfnina. Byggingin var s...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 06:00

Sterkt efni getur hæglega verið banvænt

Hálft til eitt gramm af amfetamíni getur verið stórhættulegt börnum, til dæmis ef þau mynd...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 06:00

Veiðimenn vilja gott sambýli

Borgarstjórn hefur samþykkt breytingu á deiliskipulagi sem gerir líkamsræktarfyrirtækinu B...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 05:30

Samstarf um norðurslóðamál

Háskólinn á Akureyri og Háskóli Pierre et Marie Curie skrifuðu undir viljayfirlýsingu um s...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 05:30

Gamla lánið er enn hagstæðast

Stjórn Faxaflóahafna hafnar öllum átta tilboðunum sem bárust í endurfjármögnun á langtímal...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 05:30

Borgin byggir upp skólalóðir

Sett verða upp ný boltagerði við tvo grunnskóla í Reykjavík í sumar; Breiðagerðisskóla og ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 05:30

Frakkar stórir í þorskkaupum

Fiskkaupendur í Frakklandi keyptu á fyrsta ársfjórðungi þessa árs 45% meira af ferskum þor...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 05:00

Eiga 25.000 skópör á lagernum

Ný íþróttavöruverslun undir merkjum Sports Direct opnar við Smáratorg í Kópavogi á laugard...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 05:00

ESA skýrir samkeppnisreglur sínar

ESA, eftirlitsstofnun EFTA, hefur tekið upp nýjar reglur sem skýra eiga hvenær samkeppnisa...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 05:00

Annþór og Börkur harðneita allri sök

Tveir kunnir ofbeldismenn og refsifangar á Litla-Hrauni neita því alfarið að bera ábyrgð á...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 04:30

Alls eru 94 stjórnarfrumvörp óafgreidd

Samkvæmt starfsáætlun verður þingi frestað 31. maí og því aðeins fjórir þingdagar eftir. F...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 04:30

Aðalstigi fæst ekki færður

Byggingarfulltrúinn í Reykjavík hefur hafnað veitingu leyfis fyrir ýmsum breytingum innand...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / Gefa skýrslu um fundinn fræga 7. febrúar nái Landsdómsmál fram að ganga