Handbolti

Gaupi kíkti í klefann hjá Aftureldingu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það er svakaleg stemning hjá Aftureldingarmönnum í gær eftir að þeir höfðu unnið Val í framlengdum oddaleik í Olís-deild karla.

Guðjón Guðmundsson íþróttafréttamaður brá sér inn í klefa Aftureldingar í leikslok og tók út stemninguna.

„Það má segja að þetta hafi verið mosfellsk geðveiki,“ sagði Gunnar Malmquist Þórsson sem átti frábæran leik fyrir Aftureldingu.

„Það var frábært að spila þennan leik. Ég ber mikla virðingu fyrir þeim. Þetta var frábært einvígi.“

Gaupi ræddi við fleiri menn og klefainnslagið má sjá hér að ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×