Handbolti

Gaupi: FH með betra lið en Haukar

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Það er jafnan tekist almennilega á í leikjum Hauka og FH.
Það er jafnan tekist almennilega á í leikjum Hauka og FH. vísir/stefán
„Það er alveg frábær byrjun á tímabilinu að fá þennan slag svona snemma,“ segir Guðjón Guðmundsson, Gaupi, íþróttafréttamaður á Stöð 2 og handboltasérfræðingur, um Hafnafjarðarslag FH og Hauka sem fram fer í Kaplakrika í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19.30.

„Þetta eru alvöru leikir og vanalega alltaf fullt hús. Þó úrslitin hafi fallið með Haukum í fyrra þá finnst mér FH-ingarnir sterkari núna,“ segir Gaupi um erkifjendurna.

„Það ber að hafa í hug að Haukar misstu Sigurberg Sveinsson sem var einn albesti leikmaður síðustu leiktíð og það skarð verður vandfyllt. Þeir sakna hans, en Adam Haukur Baumruk hefur verið að gera góða hluti í skyttunni vinstra megin. En hann er ungur og því má búast við því að spilamennska hans fari upp og niður,“ segir hann, en hvað með FH-liðið?

„Mannskapurinn hjá FH er mjög góður og liðið ágætlega samansett. Mér finnst línumannsstaðan samt mjög veik hjá því. FH-liðið er samt betur mannað en Haukaliðið að mínu mati.“

Guðjón Guðmundsson, Gaupi.mynd/vilhelm
Guðjón segir Hafnafjarðarslaginn jafnan vinnast á vörn og markvörslu. Hann segir markvarðapar Haukanna með GiedriusMorkunas og Einar Óla Vilmundarson betra en hið unga par FH með þá Ágúst Elí Björgvinsson og Brynjar Darra Baldursson.

„Markvarðaparið hjá Haukum er betra þó Elí sé efnilegur. Það sama á við hann og Adam Hauk, hann er ungur og verður spilamennska hans því ekki jafnstöðug.“

„Bæði þessi lið eru líkleg til að vera í toppbaráttunni í vetur. Það má heldur ekki gleyma því að þjálfari Haukanna er betri en þjálfari FH, með fullri virðingu fyrir Halldóri Jóhanni Sigfússyni. PatrekurJóhannesson er afskaplega fær og klókur þjálfari og nærvera hans getur skipt sköpum,“ segir Gaupi, en hvort liðið hefur sigur í kvöld?

„Ég spái naumum sigri FH í kvöld, en á von á hörku leik.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×