Erlent

Gátu loks ferðast til Bandaríkjanna þegar tilskipun Trumps var felld úr gildi: „Áttaði mig á því að mig væri ekki að dreyma“

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Fuad Zharef og Nael Zanor eru meðal þeirra þúsunda einstaklinga sem tilskipun Trump hafði áhrif á.
Fuad Zharef og Nael Zanor eru meðal þeirra þúsunda einstaklinga sem tilskipun Trump hafði áhrif á. Vísir/EPA
Þúsundir einstaklinga gátu ekki ferðast til Bandaríkjanna í rúmlega viku, á meðan tilskipun Donalds Trumps um bann við komu fólks frá sjö ríkjum til Bandaríkjanna var í gildi.

Fuad Sharef er einn þeirra, en hann vann sem verktaki fyrir bandaríska herinn í Írak og vildi flytja til Bandaríkjanna í von um betra líf fyrir sig, konu sína og þrjú börn þeirra.

Þau fengu að fara um borð í flugvél á leið til Bandaríkjanna, einungis klukkustundum eftir að alríkisdómari, úrskurðaði að tilskipun Trumps stæðist ekki lög.

Sharef hafði eytt tveimur árum í að útvega sér og fjölskyldu sinni vegabréfsáritanir til þess að eiga möguleika á að flytja til Bandaríkjanna. Vikan sem leið var því afar spennuþrungin fyrir Sharef, sem segist þó hafa lært mikilvæga lexíu vegna þessa.

„Líf mitt breyttist á dramatískan hátt. En ég lærði þó þá lexíu, að ef þú átt rétt á einhverju, áttu aldrei að gefast upp,“ sagði Sharef, rétt áður en fjölskyldan hans hélt til Bandaríkjanna.

Gat ekki hitt nýfæddan son sinn

Nael Zaino, sýrlenskur flóttamaður, er annar einstaklingur sem tilskipun Trump náði til. Hann vinnur fyrir alþjóðleg hjálparsamtök fyrir flóttamenn og var staddur í Tyrklandi þegar Trump skrifaði undir tilskipunina.

Hann býr þó í Bandaríkjunum, þar sem hann á konu og nýfæddan dreng í Los Angeles. Hann nýtti sér úrskurð dómarans til þess að fljúga til Bandaríkjanna.

Hann lýsir stundinni þar sem öryggisvörður á flugvellinum í Bandaríkjunum stimplaði vegabréfið hans og gaf honum þar með leyfi til að fara inn í landið, sem ótrúlegri.

„Hann sagði við mig: „Haltu áfram, nú skaltu hefja líf þitt og njóta tímans með syni þínum,“ segir Zaino, sem segist ekki hafa trúað þessu fyrr en hann gekk út af flugvellinum.

„Á þeirri stundu áttaði ég mig á því að mig væri ekki að dreyma.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×