Fótbolti

Gary Lineker dýrkaði Tólfuna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Vísir/Samsett
Bretar gerðu upp íþróttaárið í gær í sérstakri verðlaunahátíð á vegum BBC í Birmingham en meðal fræga fólksins og stærstu íþróttastjarna Breta voru tveir íslenskir stuðningsmenn sem gerðu garðinn frægan á Evrópumótinu í Frakklandi síðasta sumar.

Kristinn Hallur Jónsson og Jóhann D Bianco flugu út til Englands til að stjórna Víkingaklappinu með fullri höll af Bretum.

Sveinn Ásgeirsson úr Tólfunni var í Bítinu á Bylgjunni í morgun og sagði Heimi Karlssyni og Gunnlaugi Helgasyni frá ferðinni.

„Ég heyrði reglulega í þeim eftir þetta og þá aðallega á snapchat. Menn voru að hitta Jamie Vardy og svona. Það var mjög mikil gleði eftir að þeir tóku klappið,“ sagði Sveinn Ásgeirsson en ekki náðist í þá Kristinn og Joey Drummer sem voru ekki vaknaði eftir hátíðina í gær.

„Þessu var tekið alveg fáránlega vel úti. Mér skilst það að Gary Lineker hafi dýrkað þá og Jamie Vardy var mjög sáttur við þetta þrátt fyrir að hafa verið í hópnum sem tapaði á móti Íslandi í sumar,“ sagði Sveinn.

„Twitter-notendum í Bretlandi fannst það mjög spes að þeir hafi fengið Íslendinga til að koma á þessa hátíð til að fullkomna niðurlæginguna,“ sagði Sveinn.

„Það voru allir mjög sáttir í salnum. Strákarnir voru búnir að vera þarna síðan á laugardagsmorgunn og voru búnir að taka fullt af æfingum. Þeir hituðu líka hópinn upp áður en hátíðin byrjaði. Það var því búið að prófa þetta einu sinni áður,“ sagði Sveinn.

Þetta var ekki í fyrsta sem sem Tólfumeðlimir eru pantaðir út til að koma með Víkingaklappið.

„Þetta BBC-dæmi kom bara upp í síðustu viku en á undan því var erlent fyrirtæki í Lúxemborg búið að hafa samband við okkur. Þeir báðu okkur um að koma á árlegan peppfund hjá þeim þar sem er verið að þjappa hópnum saman. Þeir báðu okkur um að koma nokkra út og klappa með þeim,“ sagði Sveinn.

Sveinn tók vel í þá tillögu Heimis að þeir færu niður á Alþingi til að reyna að þjappa fólki þar saman.

„Þetta er ekki alveg það sem við áttum von á en þetta er mjög gaman,“ sagði Sveinn. En var tekið á móti þeim eins og poppstjörnum.

„Þeir og Robbie Williams. Það var svolítið þannig. Það var komið fram við þá eins og poppstjörnur,“ sagði Sveinn.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×