Tónlist

Garfunkel kallar Simon „fávita“ fyrir að hætta samstarfi þeirra á hátindi frægðarinnar

Birgir Olgeirsson skrifar
Art Garfunkel og Paul Simon saman á sviði.
Art Garfunkel og Paul Simon saman á sviði. Vísir/Getty
Samband tónlistarmannanna Paul Simon og Art Garfunkel hefur ávallt verið flókið en nýverið veitti Garfunkel breska dagblaðinu The Telegraph viðtal þar sem hann virðist dýrka og dá Simon á sama tíma og hann kallar hann fávita með einhverskonar minnimáttarkennd.

Simon og Garfunkel mynduðu dúett á sjöunda áratug síðustu aldar sem hreif heiminn með sér en á hátindi frægðarinnar árið 1970 hættu þeir samstarfi sínu og virðist Garfunkel enn eiga erfitt með að skilja hvers vegna, ef marka má ummæli hans í viðtalinu.

„Þetta var mjög skrýtið. Ekki eitthvað sem ég hefði gert. Ég vil opna mig varðandi þetta en vil ekki segja neitt gegn Paul Simon. Það er samt eitthvað afbrigðilegt við það að vilja ekki njóta frægðarinnar,“ segir Garfunkel við Telegraph og telur að þeim hefði dugað árs frí.

Því næst ræddi Garfunkel flutning Simons á laginu Bridge over troubled water, sem Garfunkel söng ávallt á þeim tíma sem þeir störfuðu saman, á tónleikum með tónlistarmanninum Sting.  Garfunkel sagði það vera djarft af Simon að syngja það lag og las síðan upp frumsamið ljóð um sebrahesta fyrir blaðamanninn.

Hann var spurður hvort möguleiki væri á að þeir muni einhvern tímann leggja upp í tónleikaferð saman. „Það er gerlegt. Þegar við hittumst, og hann er með gítarinn, þá er það afar ánægjulegt fyrir okkur báða.“

Síðar í viðtalinu kallar hann hins vegar Simon fávita og fífl fyrir að hætta samstarfinu. Hann telur að rekja megi þá ákvörðun Simons til minnimáttarkenndar. Garfunkel segist hafa vorkennt Simon þegar þeir hittust fyrst því Simon var svo lágvaxinn. Þess vegna urðu þeir vinir að sögn söngvarans. „Og þessi góðvild mín skapaði skrímsli.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×