Golf

Gareth Bale byggir golfvöll í bakgarðinum

Bale er liðtækur kylfingur með 11 í forgjöf.
Bale er liðtækur kylfingur með 11 í forgjöf. vísir/Getty

Knattspyrnustjarnan og Walesverjinn Gareth Bale er forfallinn golfáhugamaður eins og margir atvinnumenn í knattspyrnu og því fer eflaust vel um hann á Spáni þar sem hann leikur með Real Madrid.

Bale hefur þó gengið skrefinu lengra en hann hefur nú hafið framkvæmdir við sveitasetur sitt í Wales þar sem hann ætlar að byggja þrjár holur í fullri stærð.

Holurnar sem um ræðir eru eftirlíkingar af mjög frægum holum, 17. holu á TPC Sawgrass vellinum, 11. holu á Augusta National og 8. holu á Royal Troon vellinum.

Bale er með rúmlega þrjá milljarða á ári í árslaun hjá Real Madrid því fátt snjallara að eyða peningnum í að búa til lítinn golfvöll í bakgarðinum þar sem hægt er að æfa í friði, en Bale segist sjálfur elska golf.

Eftir að ég flutti til Spánar þá hefur golfáhuginn aukist mikið. Ég elska þessa íþrótt og hvað maður getur notið þess að spila með félögunum án þess að neinn trufli mann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×