Íslenski boltinn

Garðar Örn féll á þrekprófi á dögunum

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Garðar Örn reynir aftur við prófið fyrir 5. ágúst.
Garðar Örn reynir aftur við prófið fyrir 5. ágúst. Fréttablaðið/Daníel
Garðar Örn Hinriksson, einn besti dómari Pepsi-deildar karla í knattspyrnu, féll á miðsumars þrekprófi KSÍ í síðustu viku, en þetta staðfesti Magnús Már Jónsson, dómarastjóri knattspyrnusambandsins, við Fréttablaðið í gær.

„Fyrir sumarið taka menn þrekpróf sem gildir til 6. ágúst, þannig að þótt menn falli í fyrstu tilraun á prófinu um mitt sumar geta þeir dæmt til 5. ágúst þegar sjúkraprófið fer fram,“ segir hann.

Garðar var því á græna miðanum, ef líkja má þessu við að fólksbíll hafi ekki komist í gegnum skoðun, þegar hann dæmdi leik KR og Breiðabliks í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport síðastliðið sunnudagskvöld.

Þar gaf Garðar Örn markverði KR, Stefáni Loga Magnússyni, rautt spjald fyrir brot utan teigs sem flestir eru sammála um að hafi verið rangur dómur. Hann hafði einnig mark af Blikum þegar hann flautaði of snemma í eitt skiptið, en taka verður fram að Garðar var oft frábærlega staðsettur í leiknum og dæmdi í heildina ágætlega.

Magnús viðurkennir að það sé ekki besta lausnin að dómarar dæmi eftir að hafa fallið á þrekprófi og segir að menn hafi velt því fyrir sér að breyta fyrirkomulaginu. Það sé þó hægara sagt en gert.

„Ef við myndum gera þetta öðruvísi værum við einfaldlega í vandræðum með að manna leiki. Það er alveg haugur af dómurum sem á eftir að taka prófið meira að segja. Við vorum til dæmis með fjóra menn í Noregi á dögunum sem vitaskuld komust ekki í prófið,“ segir Magnús.

Dómarastjórinn segir það ekki óalgengt, að menn dæmi á milli miðsumarsprófs og sjúkraprófs.

„Þetta er gífurlega krefjandi próf og dagsform manna er mismunandi. Við gefum mönnum því svigrúm í þessar tvær vikur til að klára prófið.“

En hvað gerist ef menn falla 5. ágúst?

„Þá færðu ekki að dæma áfram. Nema kannski ef það verður sjúkrapróf 10. ágúst. Við höfum lent í því að menn fái ekki að klára mótið.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×