Íslenski boltinn

Garðar missir af hraðmótinu í maí

Garðar fagnar í leik gegn FH síðasta sumar.
Garðar fagnar í leik gegn FH síðasta sumar.
Stjarnan hefur orðið fyrir áfalli þó svo Pepsi-deildin sé ekki hafin. Stjörnuframherji liðsins, Garðar Jóhannsson, mun nefnilega missa af fyrstu umferðum mótsins.

Þetta staðfestir þjálfari liðsins, Rúnar Páll Sigmundsson, við fótbolti.net í dag. Rúnar býst ekki við Garðari fyrr en í júní og framherjinn missir því af hinu mikilvæga hraðmóti í maí.

Garðar hefur verið mikið meiddur í vetur og fór í sína aðra speglun á tveim mánuðum í gær.

Rúnar Páll segir óljóst hvort Stjarnan muni styrkja sig meira áður en mótið byrjar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×