Garðabær vill kaupa Vífilsstaðalandið Sveinn Arnarsson skrifar 24. janúar 2017 07:00 Á Vífilsstöðum var rekinn berklaspítali sem hóf starfsemi 1910. vísir/heiða
Fulltrúar fjármálaráðuneytisins og Garðabæjar hafa fundað fimm sinnum um möguleg viðskipti með land Vífilsstaða síðustu mánuði. Enginn kjörinn fulltrúi hefur setið umrædda fundi heldur aðeins bæjarstjóri og bæjarritari. Af hálfu fjármála- og efnahagsráðuneytisins hafa starfsmenn þeirrar skrifstofu ráðuneytisins sem farið hefur með eignamál ríkisins setið fundina. Áslaug Hulda Jónsdóttir, formaður bæjarráðs Garðabæjar, segir bæjarstjóra hafa leitt þessar samningaviðræður fyrir hönd bæjarins. Ekki hefur hins vegar verið ákveðið hvernig nýta eigi landið komi til þess að sveitarfélagið kaupi landið. Fundað var í ágúst, september og desember og segir í skriflegu svari ráðuneytisins að Garðabær vilji kaupa landið. Síðustu ár hefur verið heimild í fjárlögum Alþingis til þess að selja jörðina komi nægilega gott boð í hana að mati ráðuneytisins.Áslaug Hulda Jónsdóttir, formaður bæjarráðs Garðabæjar.„Framangreindir fundir milli ráðuneytisins og sveitarfélagsins hafa snúist um áhuga sveitarfélagsins á að eignast land í eigu ríkisins innan marka sveitarfélagsins. Fundirnir hafa verið upplýsingafundir sem byggst hafa á vilja sveitarfélagsins að standa fyrir uppbyggingu til framtíðar á hluta Vífilsstaðalandsins. Á fundunum hefur verið farið yfir þær hugmyndir sem hvor aðilinn um sig hefur til slíkrar uppbyggingar og hvernig rétt sé að verðleggja slík svæði verði af sölu þeirra til sveitarfélagsins,“ segir í svari fjármála- og efnahagsráðuneytisins við fyrirspurn Fréttablaðsins. Fundargerðir eða minnisblöð eru ekki til í ráðuneytinu um téða fundi ríkisins með Garðabæ um möguleg kaup sveitarfélagsins á landi Vífilsstaða og er virði eignanna ekki ákveðið. „Einstakir fundarmenn hafa tekið niður persónulega minnispunkta í tengslum við viðræðurnar en ekki hafa verið haldnar formlegar eða sameiginlegar fundargerðir eða sérstök minnisblöð skrifuð eftir hvern fund,“ segir í svari ráðuneytisins. „Þetta eru vinnubrögð meirihluta Garðabæjar í hnotskurn. Umræða hefur verið lítil sem engin í bæjarstjórn eða bæjarráði um málið og enginn rökstuðningur fyrir því á hvaða forsendum Garðabær ætlar sér að kaupa landið,“ segir María Grétarsdóttir, bæjarfulltrúi Lista fólksins. „Til að mynda hefur Sjálfstæðisflokkurinn neitað okkur um áheyrnarfulltrúa í skipulagsnefnd bæjarins og er það ekki í anda góðrar stjórnsýslu.“Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Innlent „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Innlent Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Innlent Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Innlent Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Innlent Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Innlent Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Erlent Fleiri fréttir Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Haraldur mátti ekki hækka launin en Sigríður ekki heldur lækka þau Læknafélagið mótfallið lögleiðingu dánaraðastoðar „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Ekki viss hvort nokkru þurfi að breyta eftir tug milljóna króna þjófnað 546 Grindvíkingar vilja selja Þórkötlu húsið sitt Steinunn Ólína hálfu skrefi frá því að bjóða sig fram Baldur mælist með langmest fylgi Stálu áli í Grindavík en gómaðir af lögreglu Útlit fyrir að gasmengun berist til vesturs og suðvesturs Hæstiréttur bannar síþrotamanni að stunda rekstur Flestir öryggishnappar vegna heimilisofbeldis Fá 82 þúsund fyrir að vinna frá átta til 23 Sjá meira