Golf

Garcia þorir til Ríó

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Sergio Garcia.
Sergio Garcia. vísir/getty
Meðan það virðist komið í tísku hjá mörgum bestu kylfingum heims að þora ekki á ÓL á Ríó þá finnast enn kylfingar sem hafa raunverulegan áhuga á leikunum.

Einn þeirra er Spánverjinn Sergio Garcia en hann hefur tilkynnt þátttöku sína á leikunum í næsta mánuði.

Besti kylfingur heims, Jason Day, verður ekki með sem og Rory McIlroy. Þeir eru hræddir við Zika-veiruna.

„Ég veit það er einhver hætta en að fá að taka þátt fyrir hönd þjóðar minnar og hjálpa íþróttinni er of mikilvægt til að sleppa. Ég verð á Ólympíuleikunum,“ sagði Garica.

Golf verður í fyrsta sinn á Ólympíuleikunum núna síðan 1904.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×