Erlent

Gangstétt gaf sig undan fimm manns - Myndband

Samúel Karl Ólason skrifar
Gangstétt gaf sig undan fimm manns sem voru að bíða eftir strætó í borginni Harbin í Kína. Fólkið féll ofan í um þriggja metra djúpa holu sem hafði myndast undir gangstéttinni og fjögur þeirra slösuðust en meiðsl þeirra voru þó minniháttar.

Atvikið náðist á öryggismyndavélar og hefur verið í mikilli dreifingu á samfélagsmiðlum í Kína.

Samkvæmt AP fréttaveitunni, var fólkinu hjálpað upp úr holunni af gangandi vegfarendum. Ekki liggur þó fyrir hvers vegna holan hafði myndast undir gangstéttinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×