Innlent

Gámur féll af flutningabíl

Samúel Karl Ólason skrifar
Lögreglan fór ekki á vettvang, en gámurinn var tekinn upp aftur skömmum seinna.
Lögreglan fór ekki á vettvang, en gámurinn var tekinn upp aftur skömmum seinna. Vísir/Stefán
Gámur sem hýsa á starfsmenn Landspítalans datt af flutningabíl við gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar fyrir hádegi í morgun. Lögreglan fór ekki á vettvang, en gámurinn var tekinn upp aftur skömmu seinna.

Gámurinn datt af þegar bílnum var ekið af Kringlumýrarbrautinni inn á Miklubraut og urðu tafir á umferð. Mildi þykir að enginn hafi orðið fyrir gámnum þegar hann datt, en um fjölfarin gatnamót er að ræða.

Sjá má skemmdir á gámnum.Vísir/Stefán
Vel gekk að koma gáminum á réttan kjöl.Vísir/Stefán



Fleiri fréttir

Sjá meira


×