Tónlist

Gamlar hefðir hjá Geislum

Freyr Bjarnason skrifar
Hljómsveitin Geislar hefur gefið út sína fyrstu plötu.
Hljómsveitin Geislar hefur gefið út sína fyrstu plötu.
Hljómsveitin Geislar hefur sent frá sér sína fyrstu plötu, Containing the Dark. Meðlimir sveitarinnar eru Styrmir Sigurðsson, Sigríður Thorlacius, Magnús Trygvason Eliassen, Ómar Guðjónsson, Óskar Guðjónsson og Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson.

„Ég hef þekkt Ómar og Óskar lengi. Svo kynntumst við Maggi í tónlistarskóla FÍH. Við spiluðum fyrst saman á tónleikum í skólanum og síðan voru allir frekar kátir og glaðir og til í að gera eitthvað meira,“ segir Styrmir aðspurður, en platan tók tvö ár í vinnslu.

Hann hefur lengi starfað sem kvikmyndagerðarmaður en spilaði á sínum yngri árum með hljómsveitum á borð við Pax Vobis og Grafík. „Síðan fór ég seint og um síðir aftur í tónlistarnám og útskrifaðist út djasspíanódeildinni í FÍH fyrir tveimur árum.“

Styrmir segist eiga erfitt með að lýsa tónlist Geisla. „Þetta er allt vaðandi í einhverri melankólíu. Það er verið að sækja í gamlar hefðir og nostalgíu og vinna með það á skapandi og skrítinn hátt og búa til eitthvað nýtt og skemmtilegt úr því,“ segir hann. „Við erum að reyna að vera trú okkar sándi og okkar stemningu. Þetta liggur einhvers staðar á milli Radiohead og Louis Armstrong.“ 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×